Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 1. september 2026 00:03 Fréttaþularnir Telma og Tumi féllust í faðma. Vísir/Viktor Freyr Kvöldfréttir Sýnar voru sendar út í síðasta skipti í kvöld. Viktor Freyr ljósmyndari var á fréttastofugólfinu og fangaði tilfinningarnar.
Það féllu tár þegar síðasta útsendingin hófst á öllum stefum fréttanna í þau nærri fjörutíu ár sem kvöldfréttir voru sendar út. Fjöldi fólks var viðstaddur, ekki einungis starfsmenn fréttastofunnar heldur einnig ljósmyndarar, blaðamenn og tökumenn annarra fréttastofa landsins. Stjórnendur fyrirtækisins létu sjá sig. Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri las kvöldfréttirnar en lagði áherslu á að þetta væru ekki endalok fréttastofunnar. „Þannig að við segjum ekki bless. Við segjum takk,“ sagði hann. „Takk fyrir þessi fjörutíu ár í sjónvarpinu. Takk fyrir að horfa. Og takk fyrir að leyfa okkur að standa vaktina fyrir ykkur.“ Að neðan má sjá kvöldfréttatímann í heild sinni og myndir frá deginum Kolbeinn Tumi ritstjóri las síðasta fréttatímann.Vísir/Viktor Freyr Berghildur Erla fréttamaður ræðir við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannfélagsins, og Alma Ómarsdóttir, fréttamaður Ríkisútvarpsins.Vísir/Viktor Freyr Örvar Hafþórsson framleiðandi sá um útsendingu fréttatímans. Með honum voru Birta Rán Björgvinsdóttir aðstoðarframleiðandi, Elvar Örn sem sá um myndblöndun og Jóhannes K. Kristjánsson hljóðmaður.Vísir/Viktor Freyr Telma Tómasson fréttaþuluru til margra ára klappar að útsendingunni lokinni.Vísir/Viktor Freyr Fylgst grannt með útsendingunni.Vísir/Viktor Freyr Hjalti Freyr Ragnarsson sá um myndavélarnar í stúdíóinu.Vísir/Viktor Freyr Þetta er sjónarhorn sem áhorfendur fá sjaldan að sjá.Vísir/Viktor Freyr Tómas Arnar fréttamaður faðmar hér Telmu Tómasson.Vísir/Viktor Freyr Berghildur Erla tekur viðtal við Sigmund Davíð í Smiðju. Vísir/Anton Brink Tilkynning á sjónvarpinu á Suðurlandsbraut um síðasta kvöldfréttatímann. Umfjöllun í Ríkisútvarpinu. Tímamót.Vísir/Anton Brink Sunna Sæmundsdóttir var vaktstjóri á síðustu sjónvarpsfréttavaktinni á Suðurlandsbraut.Vísir/Anton Brink Berghildur Erla og Telma Tómasson bíða átekta á meðan Kolbeinn Tumi klárar að lesa síðasta tímann. Þarna eru líka nær myndavélinni þeir Tómas Arnar og Árni Sæberg.Vísir/Anton Brink Telma Tómasson klappar fyrir síðasta tímanum með samstarfsfólki.Vísir/Anton Brink Sigurjón Guðni Ólason tökumaður stendur vaktina í stúdíóinu. Þarna er alvöru reynsla. Vísir/Anton Brink Telma Tómasson og Kolbeinn Tumi Daðason fallast í faðma.Vísir/Anton Brink Ekki bless, heldur takk! Vísir/Anton Brink Alma Ómarsdóttir fréttamaður Ríkisútvarpsins tók viðtal við Kolbein Tuma að loknum tíma. Vísir/Anton Brink Örvar Hafþórsson pródúsent og Kolbeinn Tumi að loknum tíma. Viðeigandi tilkynning á bakvið þá.Vísir/Anton Brink Fréttamenn Sýnar Oddur Ævar, Árni Sæberg, Berghildur Erla og Tómas Arnar fylgjast með. Vísir/Anton Brink Sigurjón Guðni Ólason tökumaður með allt á hreinu. Vísir/Anton Brink
Kvöldfréttir Fjölmiðlar Sýn Tímamót Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Sjá meira