Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 29. ágúst 2026 16:06 Ingólfur segir sóðaskap í Kjarnaskógi árlegan og fylgi oft skólabyrjun. aðsend Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga segir sóðaskapinn sem mætti honum í Kjarnaskógi í morgun yfirgengilegan. Dósir lágu um alla jörð og æla á skiptiborði ætluðu ungabörnum.
Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, tók eftir umgengninni þegar hann réðst í síðasta garðslátt sumarsins í skóginum. „Það eru forréttindi að vera í sjálfboðavinnu á laugardagsmorgni. Ég fékk til dæmis að byrja daginn á því að þrífa ælu af skiptiborðinu, þar sem skipt er á ungabörnum seinnipartinn. Þannig ég er mjög glaður í hjarta. Þið sem skilduð allt þetta rusl eftir í Kjarnaskógi í nótt, megi það vera ykkur til ævarandi skammar og komið aldrei hingað aftur,“ segir Ingólfur í myndskeiðinu sem hann birti á Facebook síðu Skógræktarfélags Eyfirðinga. Rúv fjallaði fyrst um málið en Ingólfur segir í samtali við fréttastofu Vísis að svona umgengni sjáist ekki oft á svæðinu en það gerist um það bil einu sinni á ári. „Þetta er pínu árvisst og tilheyrir skólabyrjun.“ Hann segir að fjölmennt partí hafi verið á svæðinu og að ruslafötur sem sannarlega séu á svæðinu hafi ekki verið ofarlega í huga gesta. „Það voru svona tíu dósir í fötunni en fimmtíu lagðar snyrtilega á jörðina.“ Dósir lágu um alla jörð.aðsend Ingólfur segir að það sem fari mest í taugarnar á starfsfólki skógræktarfélagsins sé það rusl sem vegfarendur um Kjarnaveg henda út um bílrúðuna og nefnir hann í því samhengi dósir, hamborgarbréf, ísbox, rafrettur og nikótínpúða. Hann vonar að málið veki menn til umhugsunar. Hann byrsti sig annað hvert ár og þegar það gerist taki foreldrar eftir umgengninni og ræði við börn sín. „Ég er bara fúll, nenni ekki að þrífa ælur.“
Akureyri Umhverfismál Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Fleiri fréttir Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Sjá meira