Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs Telma Tómasson skrifar 28. ágúst 2026 11:30 Hádegisfréttir á Bylgjunni eru sagðar á slaginu klukkan tólf, en þar ber hæst að tuttugu prósent þeirra sem eru á kjörskrá hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhald viðræðna við Evrópusambandið.
Rætt verður við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu og farið yfir helstu atriði varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram á morgun, laugardag 29. ágúst. Í hádegisfréttum verður einnig greint frá því að ríkisstjórn Noregs hefur lýst yfir þjóðarsorg í landinu, vegna andláts Haraldar fimmta Noregskonungs. Þjóðarleiðtogar og hátt settir embættismenn víðs vegar að hafa birt samúðarkveðjur vegna fráfalls konungs. Þeirra á meðal er Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sem talar hlýlega um Harald konung í færslu á Facebook í morgun. Rætt verður við Höllu í hádegisfréttum. Og í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hefur fjöldi fólks komið fram, ýmist fyrir hönd já-fylkinga eða nei-sinna í umræðuþáttum og fréttum. Forystufólk stjórnmálaflokkanna fær ýmist lof eða last í könnun Maskínu, en flestir telja Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, hafa staðið sig best af formönnum stjórnmálaflokkanna í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna á morgun. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafa staðið sig verst að mati almennings. Nánar um þetta klukkan tólf. Yfirvöld í Nepal segja að björgunarstörf séu hafin að nýju í héruðunum á landamærunum við Tíbet þar sem hrikaleg skyndiflóð ollu gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni, í vikunni. Hlé var gert á björgunaraðgerðum, bæði í Nepal og Tíbet, vegna mikillar vatnssöfnunar í lóni, sem er farið að flæða yfir bakka sína. Forstöðumaður frístundaheimilis óttast að allt faglegt starf færist yfir á ófaglærða eftir uppsagnir Reykjavíkurborgar. Starfsfólk sé uggandi yfir stöðunni og missi jafnvel svefn. Sameyki hélt í morgun félagsfund vegna uppsagnanna þar sem farið var yfir stöðu mála og félagsfólki veittur stuðningur í næstu skrefum. Fjölbreyttur fréttatími á Bylgjunni í hádeginu. Umsjónarmaður og þulur er Telma L. Tómasson. Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 28. ágúst2026
Hádegisfréttir Bylgjunnar Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira