Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar 27. ágúst 2026 15:00 Það virðist nokkuð merkilegt hafa gerst í samgöngumálum þjóðarinnar á nýliðnu sumri. Allt bendir til þess að hleðslukvíðinn, sem mörg okkar hafa þjáðst af, sé nú að lina tökin á landanum. Gögn frá hraðhleðslustöðvum víða um land leiða í ljós að notkun þeirra hafi aukist verulega frá fyrra ári eða um 50% á milli ára. Þróunin vekur áhugaverðar spurningar um hvernig Íslendingar nota rafbíla sína og hvort viðhorf til þeirra séu að breytast. Margt gæti þó skýrt þessa aukningu. Rafbílum hefur sannarlega fjölgað en þeim fjölgaði aðeins um 20% milli ára og því ekki fullnægjandi skýring. Þá var ítrekað fjallað um það í fjölmiðlum að margir íbúar suðvesturhluta landsins lögðu á veðurflótta í sumar og héldu sig um Norður- og Austurland. Rigningasumar í Reykjavík virðist hins vegar ekki vera megin skýringin því álag á hleðslukerfin í borginni tók ekki neina dýfu niður á við meðan regnið var við völd. Ég tel líklegustu skýringuna á aukinni notkun vera þá að rafbíllinn hafi í sumar loksins rutt sér til rúms sem aðal ferðabíll fjölskyldunnar. Það er nokkuð merkilegt því það eru liðin 8 ár frá því að við auglýstum í blöðum að hraðhleðslunetið væri orðið nægilega öflugt til þess að aka rafbílum hringinn í kringum landið. Það var hins vegar alveg ljóst að kerfið væri ekki nóg. Það tæki tíma fyrir tæknina til að ná yfirhöndinni í baráttunni við hleðslukvíðann og eldsneytisbílinn. Miðað við þróunina í sumar er sterk vísbending um að sá dagur sé upp runninn. Ég segi fyrir mig að hjá minni fjölskyldu er tími rafbílsins kominn. Rafbíllinn kemur okkur hvert á land sem er með miðstöðina í botni. Á ferð um landið hugsa ég með hlýju til liðinna tíma þegar fólk þurfti að spara hleðsluna og ók um í dúnúlpum því það eyddi of miklu rafmagni að hita bílinn með miðstöðinni. Nú er aldrei of kalt í bílnum og ef mér verður of heitt þá skrúfa ég bara niður rúðuna og hleypi kalda loftinu inn og gleðst yfir því að ferðalagið á rafbílnum sé betra fyrir umhverfið, budduna og samlyndi okkar hjóna. Höfundur er forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá Orku náttúrunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar