Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar 27. ágúst 2026 07:50 Ekki er öll vitleysan eins og alls ekki á þessum óreiðutímum þar sem tækniframfarir sem við höfum hlakkað til að myndu einfalda líf okkar flækjast bara fyrir og hvergi finnst þessi æðri máttur, hann Jens, sem Fóstbræður létu okkur vita að væri hægt að hringja í til að útkljá erfið mál og ná góðri lendingu. Eða að minnsta kosti fá endanlegt svar: Já eða nei. Við kunnum þetta Þjóðin er vön að kjósa. Hún kann það afskaplega vel, enda var sjálfstæðið dýrmætt. Og hún gerir það líka býsna vel þátttökulega séð. Þjóðaratkvæðagreiðslur frá sjálfstæði hafa meira að segja í tvígang verið með fleiri málum í einu, tvö í 1944 og sex í 2012, og voru þær báðar tengdar stjórnarskrá. Við höfum haft tvær bindandi og göngum við til þeirra fimmtu ráðgefandi næstkomandi laugardag. Það skiptir máli, því ríkisstjórninni er ekki lagalega skylt að hl ýta niðurstöðunni, eins og við vitum af reynslu, en boðað hefur verið að niðurstöðunni verði fylgt eftir. Svo langt svo gott. Hvad foregår der her! Já, þetta er dönsk sletta. Enda ólst ég upp í Danmörku, í Evrópusambandinu, á tímum sem sáu fleiri sigra en ég hef séð síðan. Verndun ósonlagsins, fall Berlínarmúrsins sem fylgdu stórar breytingar á því hvernig evrópskar þjóðir starfa saman. Úr því varð samband. Sambönd eru vissulega ekki alltaf dans á rósum og krefst það skuldbindingar að ganga í slíkt. Við erum núna á stað þar sem við njótum góðs af samstarfi í gegnum Evrópska efnahagssvæðið. Það veitir okkur margvíslegt frelsi og tækifæri til hagsmunagæslu þjóðarinnar en engan atkvæðisrétt. Hvað er það þá sem eiginlega hefur gengið á síðustu mánuði og vikur? Samfélagsmiðlar loga, Nostradamusar þjóðarinnar bölva í matarboðum og spámenn rísa upp út um allar trissur og flest okkar eru hreinlega dauðþreytt á áreiti, skautun og öfgaliðsmenningu sem líkist orðaskiptum eftir knattleik þar sem við teljum okkur trú um að við séum ekki með hvort öðru í liði, sem er innilega rangt. Sem dæmi get ég nefnt að bróðir minn er grjótharður Liverpool-maður. Ég mun ávallt vera með honum í liði þótt hann hafi hræðilegan smekk í enska boltanum. Stop nu Síðast þegar viðræður urðu milli Íslands og ESB kom enginn og spurði okkur. Núna er verið að spyrja okkur. Það er til bóta. Hvers vegna erum við þá núna að láta kaffæra okkur með áróðri og dómsdags eða paradísaralhæfingum spunnum upp af vélum sem geta ómögulega tekið ákvarðanir fyrir okkur? Þetta er hreinlega komið gott. Ég er forvitinn um hvað við getum samið um í Brussel fyrir hönd allrar þjóðarinnar. Þessi forvitni er nóg til að ég kýs já til að hefja viðræður, vitandi að það eru afar margir varnaglar sem tryggja það ferli sem tekur við skyldi þjóðin nýta tækifærið og hefja viðræður á ný. Tölum saman. Hlustum á áhyggjur hvor annars og verum hver með öðru í liði. Tryggjum að við vitum hvað við erum að velja eða hafna þegar þar að kemur - og tökum eitt skref í einu. For helvede, eins og Daninn myndi segja. Höfundur er fyrirtækiseigandi, langþreyttur á upplýsingaóreiðu og formaður Pírata Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar