Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. ágúst 2026 10:43 Guðjón Valur hefur verið þjálfari Gummersbach síðan 2020. vfl gummersbach Guðjón Valur Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við þýska félagið Gummersbach til ársins 2029.
Samningur Guðjóns Vals átti að renna út á næsta ári og hann hafði verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Kiel en ákvað að halda kyrru fyrir. Félagið tilkynnti um framlengdan samning í skemmtilegu myndbandi sem má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram Guðjón Valur hefur verið þjálfari Gummersbach síðan hann lagði handboltaskóna á hilluna árið 2020. Þá var liðið í B-deildinni en undir hans stjórn komst liðið upp í efstu deild og hann var kosinn þjálfari ársins á fyrsta tímabili. Síðan hefur liðið fest sig í sessi sem eitt af bestu liðum deildarinnar og komist tvisvar í Evrópudeildina á síðustu þremur árum. Á síðasta tímabili hafnaði Gummersbach 4. sæti deildarinnar og Guðjón Valur var aftur kjörinn þjálfari ársins. Landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson hefur verið leikmaður Gummersbach síðan 2020. FH-ingurinn Garðar Ingi Sindrason er nýgenginn til liðs við Gummersbach og mun spila með liðinu á næsta tímabili. View this post on Instagram „Goggi hefur verið lykilmaður í að móta þróun félagsins okkar undanfarin sex ár,“ segir Cristoph Schindler, framkvæmdastjóri VFL Gummersbach. „Hann er holdgervingur fagmennsku, ástríðu og alúðar í daglegu starfi. Á sama tíma samsamar hann sig fullkomlega með VFL, liðinu okkar og hugmyndafræði okkar. Sú staðreynd að við getum haldið þessu samstarfi áfram til langs tíma veitir okkur mikið skipulagsöryggi og sendir mikilvæg skilaboð bæði inn á við og út á við,“ bætti Schindler við. „Ég er mjög ánægður og þakklátur fyrir það traust sem félagið hefur sýnt mér. Við höfum byggt mikið upp saman á undanförnum árum, en mér finnst samt að vegferð okkar sé hvergi nærri lokið,“ segir hinn 47 ára gamli Guðjón Valur.
Þýski handboltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira