Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar 26. ágúst 2026 10:30 Það var sannkallað stórfljót fólks á öllum aldri sem flæddi um götur höfuðborgarinnar í Reykjavíkurmaraþoninu, þeirri árlegu hreyfi- og gleðihátíð. 13.000 þátttakendur í hlaupinu voru Íslendingar eða 1 af hverjum 30 landsmönnum. Reykjavíkurmaraþonið er einstakt. Þar koma saman þaulreyndir langhlauparar og skokkarar sem eru ýmsu vanir en á hverju ári eru líka margir sem eru að stíga sín fyrstu skref í hlaupum og reglulegri hreyfingu. Fólk tekur þátt á mismunandi forsendum; sumir keppa við klukkuna, margir drífa sig af stað til að styðja við tiltekin málefni eða til að koma sér af stað í hreyfingu og ýmsir taka einfaldlega þátt til að njóta stemningarinnar. Sumir vinna sína eigin stórsigra jafnvel þó þeir komi ekki fyrstir í mark. Varst þú í þessum hópi? Það skiptir engu máli hvað þú hljópst hratt eða hve langt, mikilvægast er að þú fórst af stað. Það allra besta væri síðan að þú héldir áfram, nú þegar skriður er kominn á, af því regluleg hreyfing er einfaldlega eitt það besta sem þú getur gert fyrir heilsuna. Hjartað og æðakerfið, stoðkerfið og andleg heilsa nýtur góðs af auk þess sem regluleg hreyfing stuðlar að heilbrigðri líkamsþyngd og dregur úr líkum á ýmsum sjúkdómum, þar á meðal ákveðnum krabbameinum. Einnig bendir flest til þess að þeir sem stunda reglulega hreyfingu eigi betra með að takast á við erfið veikindi og jafna sig eftir þau. Við hjá Krabbameinsfélaginu hvetjum öll sem hlupu til að nýta þátttökuna í Reykjavíkurmaraþoninu sem stökkpall til að halda áfram á þessari braut. Haltu áfram að hreyfa þig; á morgun, í næstu viku, í næsta mánuði. Einn dag í einu, eitt skref í einu og þá ertu sannarlega að gera þér og heilsunni greiða. Mundu líka að allt er betra en ekki neitt, það þarf ekki maraþonþjálfun til að hafa mikil og góð áhrif á heilsuna. Þegar horft er til stóra samhengisins getur sú hvatning og innspýting sem Reykjavíkurmaraþonið hefur til að koma stórum hluta þjóðarinnar á hreyfingu haft ótrúlega mikil áhrif. Það á einkum við ef sem flestir halda áfram að hreyfa sig og gera reglulega hreyfingu að sjálfsögðum þætti í lífi sínu og drífa jafnvel fjölskylduna og sem flesta aðra með. Hreyfing hvers og eins skiptir máli og því fleiri sem hreyfa sig, því betra fyrir okkur sem samfélag. Við hjá Krabbameinsfélaginu hvetjum þig til að líta ekki á Reykjavíkurmaraþonið sem endapunkt. Líttu frekar á það sem upphaf að áframhaldandi hreyfingu. Höfundur er teymisstjóri í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar