Handbolti

Á­fall í undir­búningi Ís­lands fyrir HM

Aron Guðmundsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands, er væntanlega ekki ánægður með nýjustu tíðindi.
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands, er væntanlega ekki ánægður með nýjustu tíðindi. Vísir/EPA

Egypska landsliðið í handbolta er hætt við að koma hingað til lands og spila tvo æfingaleiki við Íslands skömmu fyrir HM í janúar á næsta ári.

Þetta staðfestir landsliðsþjálfari Íslands, Snorri Steinn Guðjónsson í samtali við vefsíðuna Handkastið en leikirnir við Egyptaland áttu að fara fram hér heima þann 7. og 9. janúar á næsta ári, nokkrum dögum fyrir fyrsta leik Íslands á HM í Þýskalandi. 

Í stað þess að koma hingað til lands hafa Egyptar ákveðið að halda æfingamót í heimalandi sínu á sama tíma. 

Högg í undirbúningi Strákanna okkar sem verður að leysa með einhverjum hætti en eins og greint er frá í frétt Handkastsins getur reynst þrautinni þyngri að finna góða andstæðinga á þessum tímapunkti því vel flestar þátttökuþjóðir HM eru búnar að geirnegla sína daga fyrir mót. 

Ísland spilar í H-riðli á HM með Norður-Makedóníu, Barein og Japan í Magdeburg. Fyrsti leikur liðsins er gegn Barein þann 15.janúar næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×