Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon skrifar 23. ágúst 2026 07:02 Það vakti óneitanlega athygli þegar Samtök atvinnulífsins birtu niðurstöðu viðhorfskönnunar þess efnis að 66% aðildarfyrirtækja samtakanna væru andvíg því að Ísland gengi í Evrópusambandið. Voru margir á þeirri skoðun að frekar hefði átt að beina þeirri spurningu til félagsmanna hvort að taka ætti upp viðræður að nýju við ESB, eins og spurningin mun hljóða í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst nk. En af um 2.000 aðildarfyrirtækjum SA svöruðu samtals 591 fyrirtæki þessari spurningu í könnunni og þar af 388 neitandi, eða innan við 20% aðildarfyrirtækja samtakanna. Þess vegna er sú framsetning sem sést hefur í fjölmiðlum að 66% fyrirtækja innan SA séu málinu mótfallin í besta falli villandi. Í árlegri leit sinni að framúrskarandi fyrirtækjum skoðar Creditinfo um 22.000 fyrirtæki enda fanga að leita mun víðar en hjá þeim 2.000 félagsmönnum sem tilheyra SA. Þar sem lítil og meðalstór fyrirtæki eru hryggjarstykkið í íslensku atvinnulífi er sú spurning óneitanlega mjög áleitin hvert viðhorf þeirra 20.000 fyrirtækja sem ekki eru aðilar að SA er til aðildarviðræðna við ESB. Við þekkjum fá dæmi um að meiri upplýsingar leiði til verri niðurstöðu og því eigum við erfitt með að trúa að meirihluti forsvarsmanna lítilla og meðalstórra fyrirtækja vilji ekki skoða möguleikann á því að komast í annað og stöðugra rekstrarumhverfi. Stjórnendur þeirra þekkja af eigin raun þá áskorun sem felst í því að reka fyrirtæki með óstöðugum gjaldmiðli og þurfa að búa við þann gríðarlega fjármagnskostnað sem stendur þeim til boða á íslenskum fjármálamarkaði. Sá aðstöðumunur sem er á milli þessara fyrirtækja og þeirra fjölmörgu sem mega starfa utan krónuhagkerfisins er beinlínis sláandi. Það eru í raun tvær tegundir fyrirtækja sem starfa á Íslandi í dag, þau sem eru lítt háð íslensku krónunni og hin sem eiga ekki annan kost og eru algerlega háð sveiflum þessa örgjaldmiðils. Þessi aðstöðumunur og skert samkeppnisstaða er nær aldrei dregin fram í umræðunni um rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og má það undrun sæta. Við undirrituð höfum um árabil staðið fyrir atvinnurekstri hér á landi og/eða verið í framvarðarsveit í hagsmunagæslu fyrir fyrirtæki í verslunar- og þjónustugreinum. Reynsla okkar af þeim vettvangi hefur sannfært okkur um að íslenska krónan er einn stærsti dragbítur í daglegum rekstri fyrirtækja í þeim greinum. Í ljósi þessarar reynslu teljum við það beinlínis útilokað að 66% fyrirtækja á Íslandi séu ekki tilbúin til að láta á það reyna hvort annar gjaldmiðill en íslenska krónan geti ekki fært þeim lækkun á rekstrarkostnaði og meiri fyrirsjáanleika en nú er. Að tengjast með enn traustari hætti helstu viðskipta- og vinaþjóðum Íslands. Höfundur eru lögfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri SVÞ, rekstrarhagfræðingur og fyrrverandi formaður SVÞ og loks framkvæmdastjóri og fyrrverandi formaður FKA og SVÞ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson skrifar Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson skrifar Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Síli veidd í skólpi Jónas Már Torfason ,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Sjá meira
Það vakti óneitanlega athygli þegar Samtök atvinnulífsins birtu niðurstöðu viðhorfskönnunar þess efnis að 66% aðildarfyrirtækja samtakanna væru andvíg því að Ísland gengi í Evrópusambandið. Voru margir á þeirri skoðun að frekar hefði átt að beina þeirri spurningu til félagsmanna hvort að taka ætti upp viðræður að nýju við ESB, eins og spurningin mun hljóða í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst nk. En af um 2.000 aðildarfyrirtækjum SA svöruðu samtals 591 fyrirtæki þessari spurningu í könnunni og þar af 388 neitandi, eða innan við 20% aðildarfyrirtækja samtakanna. Þess vegna er sú framsetning sem sést hefur í fjölmiðlum að 66% fyrirtækja innan SA séu málinu mótfallin í besta falli villandi. Í árlegri leit sinni að framúrskarandi fyrirtækjum skoðar Creditinfo um 22.000 fyrirtæki enda fanga að leita mun víðar en hjá þeim 2.000 félagsmönnum sem tilheyra SA. Þar sem lítil og meðalstór fyrirtæki eru hryggjarstykkið í íslensku atvinnulífi er sú spurning óneitanlega mjög áleitin hvert viðhorf þeirra 20.000 fyrirtækja sem ekki eru aðilar að SA er til aðildarviðræðna við ESB. Við þekkjum fá dæmi um að meiri upplýsingar leiði til verri niðurstöðu og því eigum við erfitt með að trúa að meirihluti forsvarsmanna lítilla og meðalstórra fyrirtækja vilji ekki skoða möguleikann á því að komast í annað og stöðugra rekstrarumhverfi. Stjórnendur þeirra þekkja af eigin raun þá áskorun sem felst í því að reka fyrirtæki með óstöðugum gjaldmiðli og þurfa að búa við þann gríðarlega fjármagnskostnað sem stendur þeim til boða á íslenskum fjármálamarkaði. Sá aðstöðumunur sem er á milli þessara fyrirtækja og þeirra fjölmörgu sem mega starfa utan krónuhagkerfisins er beinlínis sláandi. Það eru í raun tvær tegundir fyrirtækja sem starfa á Íslandi í dag, þau sem eru lítt háð íslensku krónunni og hin sem eiga ekki annan kost og eru algerlega háð sveiflum þessa örgjaldmiðils. Þessi aðstöðumunur og skert samkeppnisstaða er nær aldrei dregin fram í umræðunni um rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og má það undrun sæta. Við undirrituð höfum um árabil staðið fyrir atvinnurekstri hér á landi og/eða verið í framvarðarsveit í hagsmunagæslu fyrir fyrirtæki í verslunar- og þjónustugreinum. Reynsla okkar af þeim vettvangi hefur sannfært okkur um að íslenska krónan er einn stærsti dragbítur í daglegum rekstri fyrirtækja í þeim greinum. Í ljósi þessarar reynslu teljum við það beinlínis útilokað að 66% fyrirtækja á Íslandi séu ekki tilbúin til að láta á það reyna hvort annar gjaldmiðill en íslenska krónan geti ekki fært þeim lækkun á rekstrarkostnaði og meiri fyrirsjáanleika en nú er. Að tengjast með enn traustari hætti helstu viðskipta- og vinaþjóðum Íslands. Höfundur eru lögfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri SVÞ, rekstrarhagfræðingur og fyrrverandi formaður SVÞ og loks framkvæmdastjóri og fyrrverandi formaður FKA og SVÞ.
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun