Síli veidd í skólpi Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir skrifa 23. ágúst 2026 06:31 Kópavogsdalurinn er einstök náttúruperla í miðju höfuðborgarsvæðisins. Það felast mikil lífsgæði í aðgangi að slíkri auðlind. Við eðlilegar aðstæður ætti Kópavogslækurinn sömuleiðis að vera auðlind til útiveru en lengi hefur loðað við lækinn að hann sé óheilsusamur vegna mengunar. Þrátt fyrir að við lækinn sjáist oft börn að leik hafa reglulega verið fluttar fréttir af mengun lækjarins, nú síðast í júní þar sem sagt var frá mikilli olíumengun. Af því tilefni lögðu fulltrúar Samfylkingar í skipulags- og umhverfisráði Kópavogs fram fyrirspurn þar sem spurt var út í mælingar á vatnsgæðum og áætlanir um úrbætur. Á fundi ráðsins í vikunni bárust greinargóð svör frá Umhverfissviði Kópavogsbæjar. Nýjustu heildstæðu upplýsingar um ástand lækjarins eru sjö ára gamlar, frá árunum 2019 til 2020. Niðurstaða þeirra var að sex vöktuð efni greindust yfir viðmiðunarmörkum og er ein slík mæling nægjanleg til að efnafræðilegt ástand lækjarins sé metið slæmt. Um er að ræða þrávirk efni sem eru ýmist eitruð, krabbameinsvaldandi eða geta valdið stökkbreytingum í frumum og eiga það flest sameiginlegt að safnast upp í mannslíkamanum. Heilbrigðiseftirlitið tekur jafnframt reglulegar stikkprufur til mælingar á saurgerlum og hefur greinst viðvarandi skólpmengun í læknum. Í nær öllum mælingum hafa saurgerlar mælst yfir ásættanlegum mörkum. Þetta vandamál er ekki nýtt af nálinni. Í fjölda ára hefur vitneskja um það að lækurinn sé mengaður verið til staðar en lítið verið um aðgerðir. Ekki er ljóst að öllu leyti hvað veldur menguninni. Sumt á sér eðlilegar skýringar, t.d. að spilliefni skolist frá götu með regnvatni í lækinn og væri létt leyst með settjörnum. Annað alvarlegra og ekki eins auðleysanlegt er sú staðreynd að það fyrirfinnast rangtengingar í fráveitukerfi bæjarins sem leiðir til þess að óhreinsað skólp berst í lækinn. Samfylkingin lætur ekki sitt eftir sitja heldur leggur höfuðáherslu á að hreinsun Kópavogslækjar verði sett í forgang. Grípa þarf til markvissari aðgerða til að rekja uppruna mengunar og þegar uppruninn er ljós má ekki hika við að grípa strax til aðgerða. Vinna við gerð deiliskipulags til að setja upp settjarnir í læknum hefur staðið yfir um nokkurt skeið en henni þarf að flýta. Meta þarf hvar sé þörf á efnagildrum eða öðrum lausnum og ráðast þarf í uppsetningu þeirra án tafar. Að þessu munum við vinna í bæjarstjórn. Það má öllum vera ljóst að við þetta ástand verður ekki unað. Við Kópavogslæk er fjölbreytt barnastarf og algengt er að farið sé í ferðir í Kópavogsdal með barnahópum. Kópavogsdalurinn er jafnframt vinsæll fyrir fjölskylduferðir. Þangað til brugðist hefur verið við með afgerandi hætti og mælingar á vatnsgæðum eru komnar í ásættanlegt horf þarf að setja upp merkingar meðfram Kópavogslæk sem vara grunlausa við mengun lækjarins. Kópavogsbæ er ekki stætt á að gera ekkert meðan börn leika sér í læknum og veiða síli í skólpi. Það er óheppilegt að Kópavogslækurinn hafi mengast en óforsvaranlegt að ekki sé gripið til afdráttarlausari aðgerða þegar mengunin hefur verið þrálát í fleiri ár. Það hefur ekki skort á getu bæjarins til aðgerða heldur á pólitískan vilja til að forgangsraða verkefninu. Samfylkingin í Kópavogi er tilbúin til að greiða götur aðgerða eftir allt of langa bið. Höfundar eru bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónas Már Torfason Kópavogur Umhverfismál Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar