Skoðun

Spörum milljarða

Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar

Það hefur ekki farið framhjá neinum að framundan er kosning um hvort hefja eigi viðræður við ESB um aðild að sambandinu. Flest venjulegt fólk er nú þegar orðið þreytt á þessu karpi, sem er skiljanlegt.

Vandamálið er að ef já verður ofaná í kosningunum í næstu viku mun þessi nei eða já umræða halda áfram næstu árin. Stofnanir og embættismenn munu hella sér í samningaviðræður, stjórnmálamenn mun rífast um samningsferlið og fjölmiðlar vera uppfullir af þessari vanhugsuðu vegferð. Þannig að klofningurinn hjá þjóðinni væri rétt að byrja.

Grundvallaratriðið er að það er ekki meirihluti fyrir því að ganga inn í ESB, hvorki hjá Alþingi, atvinnulífinu né almenningi. Það liggur fyrir að varanlegar undanþágur, í þeim megin flokkum sem við Íslendingar teljum ófrávíkjanlegt að fá undanþágur á, eru óraunhæfar. Þá er búið að boða aðra kosningu þegar að aðildarsamningurinn liggur fyrir (eftir nokkur ár) og ef að þjóðin segir já þá, þá þarf Alþingi að samþykkja aðild. Og síðan þarf að breyta stjórnarskrá Íslands og boða til Alþingiskosninga til þess að samþykkja stjórnarskrárbreytingar. Þetta er algjörlega óraunhæft. Við erum ekkert að fara inn í ESB.

Íslendingar þurfa að senda núverandi ríkisstjórn skýr skilaboð. Hættið þessu Evrópu blæti og farið að einblína á það sem þið voruð kosin til, að stjórna Íslandi. Þið getið stöðvað skattahækkanir, gjaldskrárhækkanir og hafið aðgerðir með sveitarfélögunum, atvinnulífinu og verkalýðshreyfingunni um að taka höndum saman að ná hér tökum á verðbólgu og á efnahagslífinu.

Munu Íslendingar segja já þann 29. ágúst, mun kostnaður við framhaldið hlaupa á milljörðum, eða jafnvel milljarðatugum. Fyrir utan þann tíma og óvissu sem fylgir aðildarviðræðum, viðræðum sem munu óhjákvæmilega á einhverjum tímapunkti sigla í strand. Þetta brölt hefur kostað okkur nóg nú þegar.

Spörum milljarða og segjum NEI þann 29. ágúst.

Höfundur er borgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík




Skoðun

Sjá meira


×