Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar 21. ágúst 2026 15:16 Það hefur ekki farið framhjá neinum að framundan er kosning um hvort hefja eigi viðræður við ESB um aðild að sambandinu. Flest venjulegt fólk er nú þegar orðið þreytt á þessu karpi, sem er skiljanlegt. Vandamálið er að ef já verður ofaná í kosningunum í næstu viku mun þessi nei eða já umræða halda áfram næstu árin. Stofnanir og embættismenn munu hella sér í samningaviðræður, stjórnmálamenn mun rífast um samningsferlið og fjölmiðlar vera uppfullir af þessari vanhugsuðu vegferð. Þannig að klofningurinn hjá þjóðinni væri rétt að byrja. Grundvallaratriðið er að það er ekki meirihluti fyrir því að ganga inn í ESB, hvorki hjá Alþingi, atvinnulífinu né almenningi. Það liggur fyrir að varanlegar undanþágur, í þeim megin flokkum sem við Íslendingar teljum ófrávíkjanlegt að fá undanþágur á, eru óraunhæfar. Þá er búið að boða aðra kosningu þegar að aðildarsamningurinn liggur fyrir (eftir nokkur ár) og ef að þjóðin segir já þá, þá þarf Alþingi að samþykkja aðild. Og síðan þarf að breyta stjórnarskrá Íslands og boða til Alþingiskosninga til þess að samþykkja stjórnarskrárbreytingar. Þetta er algjörlega óraunhæft. Við erum ekkert að fara inn í ESB. Íslendingar þurfa að senda núverandi ríkisstjórn skýr skilaboð. Hættið þessu Evrópu blæti og farið að einblína á það sem þið voruð kosin til, að stjórna Íslandi. Þið getið stöðvað skattahækkanir, gjaldskrárhækkanir og hafið aðgerðir með sveitarfélögunum, atvinnulífinu og verkalýðshreyfingunni um að taka höndum saman að ná hér tökum á verðbólgu og á efnahagslífinu. Munu Íslendingar segja já þann 29. ágúst, mun kostnaður við framhaldið hlaupa á milljörðum, eða jafnvel milljarðatugum. Fyrir utan þann tíma og óvissu sem fylgir aðildarviðræðum, viðræðum sem munu óhjákvæmilega á einhverjum tímapunkti sigla í strand. Þetta brölt hefur kostað okkur nóg nú þegar. Spörum milljarða og segjum NEI þann 29. ágúst. Höfundur er borgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Það hefur ekki farið framhjá neinum að framundan er kosning um hvort hefja eigi viðræður við ESB um aðild að sambandinu. Flest venjulegt fólk er nú þegar orðið þreytt á þessu karpi, sem er skiljanlegt. Vandamálið er að ef já verður ofaná í kosningunum í næstu viku mun þessi nei eða já umræða halda áfram næstu árin. Stofnanir og embættismenn munu hella sér í samningaviðræður, stjórnmálamenn mun rífast um samningsferlið og fjölmiðlar vera uppfullir af þessari vanhugsuðu vegferð. Þannig að klofningurinn hjá þjóðinni væri rétt að byrja. Grundvallaratriðið er að það er ekki meirihluti fyrir því að ganga inn í ESB, hvorki hjá Alþingi, atvinnulífinu né almenningi. Það liggur fyrir að varanlegar undanþágur, í þeim megin flokkum sem við Íslendingar teljum ófrávíkjanlegt að fá undanþágur á, eru óraunhæfar. Þá er búið að boða aðra kosningu þegar að aðildarsamningurinn liggur fyrir (eftir nokkur ár) og ef að þjóðin segir já þá, þá þarf Alþingi að samþykkja aðild. Og síðan þarf að breyta stjórnarskrá Íslands og boða til Alþingiskosninga til þess að samþykkja stjórnarskrárbreytingar. Þetta er algjörlega óraunhæft. Við erum ekkert að fara inn í ESB. Íslendingar þurfa að senda núverandi ríkisstjórn skýr skilaboð. Hættið þessu Evrópu blæti og farið að einblína á það sem þið voruð kosin til, að stjórna Íslandi. Þið getið stöðvað skattahækkanir, gjaldskrárhækkanir og hafið aðgerðir með sveitarfélögunum, atvinnulífinu og verkalýðshreyfingunni um að taka höndum saman að ná hér tökum á verðbólgu og á efnahagslífinu. Munu Íslendingar segja já þann 29. ágúst, mun kostnaður við framhaldið hlaupa á milljörðum, eða jafnvel milljarðatugum. Fyrir utan þann tíma og óvissu sem fylgir aðildarviðræðum, viðræðum sem munu óhjákvæmilega á einhverjum tímapunkti sigla í strand. Þetta brölt hefur kostað okkur nóg nú þegar. Spörum milljarða og segjum NEI þann 29. ágúst. Höfundur er borgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar