BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Aron Guðmundsson skrifar 21. ágúst 2026 14:30 BBC fylgdi eftir liði KR í aðdraganda leiks liðsins gegn LIverpool hér heima í Evrópukeppni gegn enska stórliðinu Liverpool. Meðal annars var rætt við Albert Guðmundsson og Ellert B Schram Vísir/Samsett BBC hefur birt skemmtilegt innslag frá árinu 1964 þegar að KR mætti Liverpool í Evrópukeppni félagsliða. Kunnuglegum andlitum bregður fyrir, meðal annars Ellert B. Schram, þá leikmanni KR og Alberti Guðmundssyni, fyrsta atvinnumanni Íslands í knattspyrnu.
Leikirnir milli Liverpool og KR 1964 voru sögulegir fyrir bæði lið en þau voru að taka þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn. Liðin mættust fyrst á Laugardalsvelli fyrir framan rúmlega tíu þúsund manns í ágúst 1964 þar sem Liverpool vann 5-0 sigur og mánuði síðar vann enska liðið 6-1 þar sem Gunnar Felixson skoraði mark KR. Verkefnið risavaxið fyrir KR-inga og í þessu skemmtilega innslagi frá BBC er breskum áhorfendum veitt innsýn í líf leikmanna félagsins og skemmtileg viðtöl tekin. Meðal annars sat fyrir svörum Albert Guðmundsson sem var fyrsti íslenski atvinumaðurinn í fótbolta og átti seinna eftir að eiga stórmerkilegan feril í stjórnmálum. Albert, sem lék meðal annars með enska stórliðinu Arsenal á sínum ferli, var ekki parsáttur við að KR hefði dregist á móti Liverpool árið 1964. „Sem fyrrverandi atvinnumaður með Arsenal tek ég þessum leikjum of alvarlega. Veit ekki hvort ég eigi að hlægja eða gráta. Ég tel að þetta muni ekki vera góð auglýsing fyrir íslenska knattspyrnu. Munurinn á milli þessara tveggja liða er of mikill,“ sagði Albert meðal annars, með vindil í hægri hendi, á meðan að hann ræddi við Kenneth Allsop, fréttaritara BBC. Þó svo að sigur Liverpool í einvígi liðanna hafi verið stór á einvígið stóran sess í sögu enska stórliðsins. Það var árið 2024, þegar að sextíu ár voru liðin frá leik liðanna sem leikmenn KR sem mættu Liverpool árið 1964 voru heiðraðir á Anfield. Innslagið áhugaverða frá BBC um einvígi KR og Liverpool árið 1964 má sjá í heild sinni hér ofar í fréttinni. KR-ingar voru staðráðnir í því að reyna standa eins mikið í stórliði Liverpool og þeir gátu en auðsjáanlega, af viðtölum við þjálfara liðsins á þeim tíma sem og formann KR mátti heyra að við ofurefli var að etja.
Íslenski boltinn Enski boltinn KR Liverpool FC Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira