Golf

Kylfingarnir „kjöt á hlað­borði“ í Kanada

Sindri Sverrisson skrifar
Lydia Ko reynir að sýna sem minnst af holdi til að sleppa við moskítóflugurnar í Kanada.
Lydia Ko reynir að sýna sem minnst af holdi til að sleppa við moskítóflugurnar í Kanada. Samsett/Getty

Moskítóflugur herja á bestu kvenkylfinga heims í Edmonton í Kanada, á CPKCmótinu á LPGA-mótaröðinni í golfi.

Sérfræðingar telja að fimmtán sinnum fleiri moskítóflugur séu í Edmonton í sumar en á sama tíma í fyrra og hafa menn ekki séð annað eins síðan á níunda áratug síðustu aldar. Sögulega mikil rigning fyrr í sumar mun hafa haft þessi áhrif.

„Ég tók með mér þrjár ólíkar tegundir af moskítóvörn en ég er enn að reyna að finna eitthvað sem virkar af alvöru,“ sagði nýsjálenska golfstjarnan Lydia Ko við Golf.com.

„Ég ákvað að til að lifa þessa viku af þá yrði ég klædd í langerma boli, síðbuxur og háa sokka. Ég ætla ekki að bera mig neitt meira en ég þarf.

Ég er þekkt fyrir að vera í ermalausum bolum en það þýðir ekkert að vera með bera handleggi í þessari viku. Ég reyni bara að verja sjálfa mig og vera ekki eins og kjöt á hlaðborði fyrir moskítóflugurnar,“ sagði Ko sem lék á pari á fyrsta hring í gær.

Fleiri kylfingar tóku í sama streng. „Þetta er ansi slæmt. Handleggirnir eru frekar rauðir núna,“ sagði Anna Huang eftir hringinn í gær.

„Moskítóflugurnar eru mjög hrifnar af mér. Þetta er svolítið mikið sjokk fyrir kerfið,“ sagði Nelly Korda.

„Ég þarf klárlega að vera í jakka þarna úti því flugurnar eru ekki skemmtilegar,“ sagði Kiara Romero.

Hinar japönsku Miyu Yamashita og Nasa Hataoka voru efstar eftir fyrsta hring, á -8 og -7 höggum, en Romero í þriðja sæti á -6 höggum, í jafnri toppbaráttu. Kylfingarnir eru sumir byrjaðir að spila annan hring og hefst bein útsending á Sýn Sport 4 klukkan 22 í kvöld, líkt og á morgun og á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×