Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Samúel Karl Ólason skrifar 20. ágúst 2026 14:34 Rúmenar notuðu F-16 herþotu til að sprengja drónann í loft upp. EPA/ROBERT GHEMENT Ráðamenn í Rúmeníu sendu í morgun F-16 orrustuþotu til að granda drónabát sem sást í nokkur hundruð metra fjarlægð frá mikilvægum borpalli á Svartahafi. Rúmenar kenna Rússum um atvikið, sem Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir lið í blönduðum hernaði.
Borpallurinn kallast Neptun Deep og á að dæla jarðgasi úr botni Svartahafs. Þegar hann verður tekinn í notkun á næsta ári er búist við því að Rúmenía verði stærsti jarðgasframleiðandi Evrópusambandsins. Rúmenía deilir meira en sex hundruð kílómetra landamærum með Úkraínu og drónar og tundurdufl hafa ratað inn á yfirráðasvæði þeirra. Í síðasta mánuði sprengdu hermenn tvo sjálfsprengidróna sem fundust fljótandi nærri Neptun Deep. Myndband náðist af því þegar dróninn var sprengdur með herþotu í morgun. Less than an hour ago, Romanian F-16s destroyed an unidentified maritime drone less than 1 km from the Neptun Deep platform. This is Romania’s largest natural gas extraction project, expected to turn the country into EU's largest gas producer once production begins in 2027. pic.twitter.com/jrr5us28xw— Daractenus (@Daractenus) August 20, 2026 Úkraínskir stjórnendur dróna, bæði í lofti og á legi, hafa misst samband við þá vegna rafrænna truflana og þeir hafa farið af leið og jafnvel inn í önnur Evrópuríki. Það hafa rússneskir drónar einnig ítrekað gert. Ekki hefur verið sagt hverjir áttu drónann við borpallinn en Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, segir Rússa bera ábyrgðina. Í yfirlýsingu, sem Reuters vitnar í, sagðist forsetinn fordæma allar tegundir ögrunar sem þessarar af hálfu Rússa. Ursula von der Leyen tjáði sig einnig um atvikið í morgun. Hún nefndi ekki Rússland en sagði að herferð ógnana sem beindist gegn ESB og samstöðu þar ætti sér stað. Um svokallaðan blandaðan hernað væri að ræða. Þá sagði hún að verið væri að auka framleiðslu hergagna í Evrópu svo hægt væri að verjast fjölþátta ógnum hart og örugglega. Today, Romania destroyed a naval drone carrying explosives near its Neptun Deep platform in the Black Sea.An escalating campaign of threats is underway, unsettling our citizens and seeking to divide our Union.This is hybrid warfare.The founding mission of our Union is to…— Ursula von der Leyen (@vonderleyen) August 20, 2026
Rúmenía Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Evrópusambandið Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira