Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Birgir Olgeirsson skrifar 19. ágúst 2026 13:54 Borgarísjakinn lónar í Ísafjarðardjúpi og sést frá Bolungarvík. Talið er að hann hafi brotnað úr stórri íseyju á Grænlandssundi. Tómas Rúnar Borgarísjaki lónar nú í Ísafjarðardjúpi og sést frá Bolungarvík. Jakinn brotnað úr óvenjustórri íseyju á Grænlandssundi. Dósent í landafræði varar fólk við að sigla nærri slíkum jökum, sem geta oltið með litlum fyrirvara og myndað flóðbylgju.
Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landafræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, segir íseyjuna sjálfa enn vera nokkurn veginn mitt á milli Íslands og Grænlands. Landhelgisgæslan og vísindamenn hafa fylgst með henni frá mánaðamótum júní og júlí með gervitunglamyndum. Hún hefur hringsólað á Grænlandssundi vegna iðuhreyfinga og straumskila þar sem hlýrri og kaldari sjór mætast. „Svona smátt og smátt rekur hana suður á bóginn en hún er búin að taka góðan tíma í það,“ segir Ingibjörg í samtali við Vísi. Enn margir kílómetrar að stærð Fyrir nokkrum dögum mældist íseyjan 5,4 kílómetrar á lengd og tæpir fjórir kílómetrar á breidd. Ingibjörg var ekki með nýjustu mælingar þegar Vísir ræddi við hana en áætlaði, með fyrirvara, að hún væri enn rúmir þrír kílómetrar að stærð. „Þannig að þetta er ekkert smáflykki sem er þarna á ferð.“ Stöðugt kvarnast úr íseyjunni vegna öldugangs og veikleika í ísnum. Brotin geta sjálf orðið býsna stór. „Jakarnir sem eru að brotna úr henni eru einhverjir hundruð metra á lengd og breidd.“ Venjulegur hafís myndast þegar sjór frýs og er að jafnaði flatur. Borgarís brotnar hins vegar úr skriðjöklum, er mun þykkari og óreglulegri og ristir því dýpra. Hafstraumar hafa þar af leiðandi meiri áhrif á rek borgarísjaka. Þannig hafa jakar úr nágrenni íseyjunnar borist inn á siglingaleiðir og nærri landi. Þeir hafa meðal annars sést frá Bolungarvík og Litlu-Ávík á Ströndum. Ekki mælt með að sigla nærri Jakarnir eru nú komnir í talsvert hlýrri sjó og bráðna hratt. Við það geta þeir orðið óstöðugir, oltið eða snúist skyndilega í sjónum. „Þannig að þótt það sé fallegt að horfa á þá er ekki mælt með því að koma nálægt þeim.“ Þegar stór jaki veltur getur myndast flóðbylgja í næsta nágrenni hans. Ingibjörg telur hættuna litla sé fólk í hæfilegri fjarlægð en segir jakana geta verið mjög varasama litlum bátum sem sigla nærri þeim. Aðspurð segir hún alltaf fræðilegan möguleika á að ísbirnir haldi sig nálægt borgarís eða hafís. Ekkert bendi þó til þess að meiri hætta sé á að ísbjörn berist til Íslands nú en að jafnaði. „Ég myndi ekki segja að það væri einhver meiri hætta núna heldur en bara svona almennt á venjulegu ári.“
Bolungarvík Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira