Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir og Brynjar Bragi Einarsson skrifa 19. ágúst 2026 11:00 Í júní 2026 birti UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, nýjustu útgáfu Children’s Climate Risk Report (CCRR), eina ítarlegustu samantekt sem gerð hefur verið um áhrif loftslagsbreytinga á börn. Skýrslan sýnir svart á hvítu að loftslagsvá er ekki aðeins umhverfisvandi - hún er aðför að réttindum barna sem snertir líf, heilsu, öryggi og framtíð milljarða barna um allan heim. Þótt loftslagsvá hafi áhrif á alla, eru börn sérstaklega viðkvæm. Líkamlegur og andlegur þroski minni geta til að takast á við áföll og takmarkaður aðgangur að þjónustu gerir þau mun berskjaldaðri en fullorðna. Skýrslan sýnir að næstum öll börn í heiminum búa þegar við að minnsta kosti eina loftslagsvá, og meira en 1,1 milljarður barna er útsettur fyrir þremur eða fleiri slíkum hættum. Þetta er fordæmalaus staða. Greiningar CCRR 2026 sýna að loftslagstengdar hættur sem ógna börnum eru helst flóð, hitabylgjur og þurrkar, skógareldar, stormar og loftmengun, auk malaríu sem er loftslagsnæm hætta. Þessar hættur eru ekki einangraðar. Þær raðast saman og magna hver aðra upp. Þurrkar geta eyðilagt uppskeru og aukið matarskort. Þurrt gróðurfar eykur líkur á skógareldum sem valda loftmengun og skilja eftir jarðveg sem er viðkvæmur fyrir skyndiflóðum. Flóð geta síðan eyðilagt heimili, skóla og heilsugæslu og dreift vatnsbornum sjúkdómum. Fyrir börn getur þessi vítahringur haft langvarandi áhrif á heilsu, menntun og öryggi. Loftslagsvá hefur áhrif á alla þætti í lífi barna. Flóð, stormar, hitabylgjur og loftmengun ógna heilsu þeirra, matvælaöryggi og aðgengi að hreinu vatni. Árið 2024 urðu 242 milljónir barna fyrir truflun á skólagöngu vegna loftslagstengdra hamfara og á árunum 2016-2023 voru 62 milljónir barna á flótta í heimalandi sínu af sömu ástæðum. Slíkar aðstæður auka hættu á ofbeldi, misnotkun og öðrum brotum gegn réttindum barna. Loftslagsvá er alþjóðlegt vandamál, en áhrifin eru mjög misjöfn. Börn í fátækum ríkjum, smáum eyríkjum og landluktum svæðum eru oft mest útsett. Þar eru samfélög veikburða, innviðir brothættir og aðgangur að grunnþjónustu takmarkaður. Í sumum löndum eru nær öll börn útsett fyrir mörgum hættum samtímis. CCRR 2026 byggir á nýjum gagnagrunni UNICEF, Global Child Hazard Database, þar sem hættur sem börn eru útsett fyrir eru kortlagðar með meiri nákvæmni en nokkru sinni. Þar má sjá hvar börn búa, hvaða hættur ógna þeim og hvar innviðir eru veikastir. Þetta gerir stjórnvöldum kleift að bregðast markvissar við, forgangsraða fjármagni og styrkja þjónustu sem verndar börn. Loftslagsvá er ekki aðeins siðferðilegt mál heldur lagalegt. Alþjóðadómstólar hafa staðfest að ríki beri skyldu til að vernda börn og bregðast við loftslagsvá. Vanræksla getur leitt til skaðabótaábyrgðar gagnvart öðrum ríkjum. CCRR 2026 er ákall um aðgerðir. Börn eru ekki aðeins framtíðin – þau eru nútíðin, og loftslagsvá bitnar nú þegar á þeim. Með markvissum aðgerðum, réttlátum orkuskiptum og styrkingu grunnþjónustu er enn hægt að tryggja börnum öruggari, heilbrigðari og réttlátari framtíð. Loftslagsbreytingar tengja saman kynslóðir. Ákvarðanir sem teknar eru í dag munu hafa áhrif á líftíma barna og ungmenna sem munu lifa lengst með afleiðingunum. Þess vegna ber okkur sem samfélagi að tryggja að börn fái sæti við borðið þegar framtíðin er mótuð. Ríkjum heims ber skylda til þess að vernda öll börn fyrir afleiðingum loftslagsbreytinga, beinum jafnt sem óbeinum. Öll börn eiga samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna rétt á því að lifa og þroskast, fá menntun, sinna tómstundum, hvílast og eiga öruggt heimili. Loftslagsbreytingar ógna öllum þessum réttindum og því er loftslagsaðgerðum ekki aðeins ætlað að vernda náttúruna heldur einnig að tryggja grundvallarréttindi barna. Loftslagsbreytingar geta ekki aðeins haft áhrif á líkamlega heilsu barna heldur einnig á andlega heilsu. Á komandi árum verða loftslagsbreytingar ein stærsta ástæða þess að börn þurfi að flýja heimili sín, hvort sem er vegna ofsahita, þurrka, elda eða hækkunar sjávarmáls. Þetta mun hafa óneitanleg áhrif á líðan barna og lífsgæði þeirra. Þessa áskorun ber stjórnvöldum skylda til að taka alvarlega og tryggja bæði líkamlega og andlega heilsu barna. Það þurfa þau að gera í samráði við börn og ungmenni svo hægt sé að koma sem best til móts við þeirra þarfir og tryggja að raddir barna heyrist þegar kemur að ákvarðanatöku um þau og þeirra framtíð. Það eru líka réttindi barna. UNICEF er einn af verndurum hinnar svokölluðu Declaration on Children, Youth and Climate Action. Öllum ríkjum hefur verið boðið að skrifa undir yfirlýsinguna og hafa yfir 75 lönd og landsvæði þegar skrifað undir, en Ísland er þó enn ekki þeirra á meðal. Með því að skrifa undir sáttmálann skuldbindur ríki sig til nokkurra þátta sem snúa að loftslagsbreytingum og aðgerðum gegn þeim í tengslum við börn og ungmenni. Sem dæmi má nefna að ríki skuldbindi sig til þess að vera málsvarar þess að réttur barna á heilsusamlegu umhverfi verði viðurkenndur á heimsvísu og tryggja að þeim réttindum verði framfylgt. Einnig skuldbinda ríki sig til þess að bæta raunverulega þátttöku barna og ungmenna í umræðu og ákvarðanatöku hvað loftslagsmál varðar. Þá er einnig kveðið á um að auka þurfi fjárfestingar til að vernda þau börn sem eru í mestri hættu vegna loftslagsbreytinga og reyna að minnka þann skaða sem börn hljóta vegna loftslagsbreytinga og tengdra náttúruhamfara . Við hvetjum ríkisstjórn Íslands til að skrifa undir Declaration on Children, Youth and Climate Action og senda skýr skilaboð um að réttindi barna og ungmenna séu órjúfanlegur hluti af loftslagsaðgerðum. Börn bera minnsta ábyrgð á loftslagsbreytingum en munu lifa lengst með afleiðingunum. Höfundar sitja í stjórn UNICEF á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar