Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar 19. ágúst 2026 09:31 Á síðasta fundi bæjarráðs Hveragerðis var samþykkt tillaga frá Okkar Hveragerði þess efnis að bærinn gangi eftir skýrum svörum og forsendum frá Vegagerðinni og innviðaráðuneytinu vegna boðaðra breytinga á almenningssamgöngum milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðisins. Bæjarstjóra hefur verið falið að koma fyrirspurnum Okkar Hveragerðis á framfæri og óska eftir þeim upplýsingum og forsendum sem liggja að baki fyrirhugaðri endurskoðun á þjónustunni. Almenningssamgöngur eru ein af lífæðum samfélagsins. Þær snúast um grunnforsendur búsetu, atvinnusóknar og náms. Málið er sérstaklega knýjandi nú þegar undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um uppbyggingu námsmannaíbúða í Hveragerði. Ef við ætlum að laða að námsmenn og ungt fólk er óboðlegt að samtímis ríki óvissa um hvernig fólk kemst í framhalds- og háskóla. Uppbygging námsmannaíbúða og hugsanlegur niðurskurður á strætó fara einfaldlega ekki saman. Við óskum ekki aðeins eftir upplýsingum um tímatöflur, fargjöld og faglegan rökstuðning, heldur leggjum við jafnframt áherslu á raunhæfar úrbætur. Sérstaklega þarf að skoða þann möguleika að að lágmarki ein ferð á morgnana á háannatíma gangi beint á BSÍ án tafa við vagnaskipti í Mjódd. Slíkt myndi spara námsmönnum og starfsfólki í miðbæ Reykjavíkur og við Landspítalann dýrmætan tíma á hverjum einasta degi og gera almenningssamgöngur að raunhæfum kosti. Það er mikilvægt að sveitarfélög á Suðurlandi standi vaktina og tryggi að ákvarðanir um grunnþjónustu séu teknar í virku samráði við íbúa og kjörna fulltrúa. Okkar Hveragerði mun fylgja málinu eftir og upplýsa íbúa um framgang þess um leið og svör berast frá stjórnvöldum. Höfundur er bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Á síðasta fundi bæjarráðs Hveragerðis var samþykkt tillaga frá Okkar Hveragerði þess efnis að bærinn gangi eftir skýrum svörum og forsendum frá Vegagerðinni og innviðaráðuneytinu vegna boðaðra breytinga á almenningssamgöngum milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðisins. Bæjarstjóra hefur verið falið að koma fyrirspurnum Okkar Hveragerðis á framfæri og óska eftir þeim upplýsingum og forsendum sem liggja að baki fyrirhugaðri endurskoðun á þjónustunni. Almenningssamgöngur eru ein af lífæðum samfélagsins. Þær snúast um grunnforsendur búsetu, atvinnusóknar og náms. Málið er sérstaklega knýjandi nú þegar undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um uppbyggingu námsmannaíbúða í Hveragerði. Ef við ætlum að laða að námsmenn og ungt fólk er óboðlegt að samtímis ríki óvissa um hvernig fólk kemst í framhalds- og háskóla. Uppbygging námsmannaíbúða og hugsanlegur niðurskurður á strætó fara einfaldlega ekki saman. Við óskum ekki aðeins eftir upplýsingum um tímatöflur, fargjöld og faglegan rökstuðning, heldur leggjum við jafnframt áherslu á raunhæfar úrbætur. Sérstaklega þarf að skoða þann möguleika að að lágmarki ein ferð á morgnana á háannatíma gangi beint á BSÍ án tafa við vagnaskipti í Mjódd. Slíkt myndi spara námsmönnum og starfsfólki í miðbæ Reykjavíkur og við Landspítalann dýrmætan tíma á hverjum einasta degi og gera almenningssamgöngur að raunhæfum kosti. Það er mikilvægt að sveitarfélög á Suðurlandi standi vaktina og tryggi að ákvarðanir um grunnþjónustu séu teknar í virku samráði við íbúa og kjörna fulltrúa. Okkar Hveragerði mun fylgja málinu eftir og upplýsa íbúa um framgang þess um leið og svör berast frá stjórnvöldum. Höfundur er bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar