Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2026 08:26 Amar Dedic á ferðinni með Bosníu gegn Bandaríkjunum í 32-liða úrslitunum á HM í sumar. Getty/Bob Kupbens Newcastle United hefur fest kaup á bosníska landsliðsmanninum Amar Dedic sem kemur til félagsins frá Benfica í Portúgal fyrir 30 milljónir punda.
Dedic á 24 ára afmæli í dag og skrifaði þessi öflugi hægri bakvörður undir samning sem gildir til næstu fimm ára. Hann endurnýjar þar með kynnin við Matthias Jaissle sem tók við Newcastle í sumar en saman fögnuðu þeir austurríska meistaratitlinum með Red Bull Salzburg árið 2023. „Það er mjög sérstök tilfinning og mikill heiður fyrir mig að ganga til liðs við Newcastle United. Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað og get ekki beðið eftir að byrja að spila fyrir félagið og þessa stórkostlegu stuðningsmenn,“ sagði Dedic. Welcome to Newcastle United, Amar Dedić 💪 pic.twitter.com/L7yQS6zKrO— Newcastle United (@NUFC) August 18, 2026 „Það að fá að starfa aftur með Matthias hafði mikið að segja fyrir mig. Við þekkjum hvorn annan vel. Hann veit hvað ég hef fram að færa á vellinum og ég er mjög ánægður að fá að spila fyrir hann aftur,“ sagði spenntur Dedic. Fyrsti leikur Newcastle á nýrri leiktíð í ensku úrvalsdeildinni er stórleikurinn við Liverpool á sunnudaginn klukkan 15:30. Svo gæti farið að Dedic verði hent strax út í djúpu laugina því Tino Livramento er enn að jafna sig af kálfameiðslunum frá því á HM í júní. Newcastle hefur leitað að hægri bakverði í sumar eftir að samningur Kierans Trippier rann út og hann gekk í raðir Wolves.
Enski boltinn Newcastle United Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Fótbolti Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Golf Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Fótbolti Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira