Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2026 08:02 Pep Guardiola smellti kossi á eiginkonu sína, Cristinu Serra, eftir að hafa gert Manchester City að Evrópumeistara í fyrsta sinn í sögunni, árið 2023. Einu og hálfu ári síðar voru þau skilin. Getty/Ian MacNicol Pep Guardiola nýtti skilnað sinn við Cristinu Serra oftar en einu sinni í sannkölluðum þrumuræðum til að kveikja neista hjá leikmönnum sínum í Manchester City, og opnaði sig um sársaukann sem skilnaðinum fylgdi.
Guardiola kvaddi Manchester City í vor eftir vægast sagt gjöful tíu ár í fótboltanum. Þeim árangri fylgdi hins vegar fórnarkostnaður og í ræðu eftir tap gegn Brighton í byrjun síðustu umferðar sagðist Spánverjinn hafa fórnað fjölskyldunni fyrir liðið sitt, og skammaði menn fyrir að endurgjalda honum það ekki með betri frammistöðu. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri fjögurra þátta seríu á Amazon Prime, A Beautiful Obsession, þar sem fjallað er um síðustu tvö ár Guardiola með City. Greint var opinberlega frá skilnaði Guardiola og Serra í desember 2024 en sú ákvörðun Guardiola að framlengja samning sinn við City og halda kyrru fyrir í Manchester ku hafa átt sinn þátt í skilnaðinum. Pep Guardiola var óþreytandi við að koma leiðbeiningum til sinna leikmanna í gegnum árin hjá Mancheste City.Getty/John Walton Í sama mánuði, í lok árs 2024, tapaði City 2-0 fyrir Juventus í Meistaradeild Evrópu og var það sjöunda tap liðsins í tíu leikjum. Eftir tapið hvatti Guardiola leikmenn til að missa ekki ástríðuna, eins og þau hjónin hefðu gert. „Við glötuðum ástríðunni“ „Strákar, ég verð að viðurkenna eitt. Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar. Það er konan mín, fyrrverandi konan mín. Ég elska hana ólýsanlega mikið! En við glötuðum ástríðunni. Það eru margar ástæður fyrir því en við misstum ástríðuna. Elska ég hana? Svo sannarlega. Elskar hún mig? Já. En við glötuðum ástríðunni. Hvers vegna spilið þið fótbolta? Af því að þið fáið borgað? Eða út af einhverju innra með ykkur? Í lífinu, hvað sem þið ætlið að gera, gerið það af ástríðu. Ég vil ekki hvaða leikmenn sem er. Ég vil leikmenn með ástríðu,“ sagði Guardiola. „Fórna lífi mínu og fjölskyldu fyrir ykkur“ Þetta var þó ekki í eina skiptið sem hann minntist á skilnaðinn í liðsræðum því eins og fyrr segir þá kom hann einnig til tals eftir 2-1 tapið gegn Brighton í byrjun síðustu leiktíðar. Þá var ekki orðið opinbert að um síðustu leiktíð Guardiola með City væri að ræða. „Ég fórna lífi mínu, skilnaði og fjölskyldu og öllu fyrir ykkur. Og hvað gefið þið til baka? Þessi fokking frammistaða frá ykkur öllum er algjörlega til skammar. Og þið vitið hvað mun gerast. Þið vitið það, ekki satt? Þið fáið nýjan stjóra. Þið munið fá nýjan stjóra!“
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Fleiri fréttir Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Sjá meira