Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar 17. ágúst 2026 08:46 Það voru ekki allir ánægðir með þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að treysta þjóðinni fyrir því hvort Ísland ætti að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks mótmæltu því einnig harðlega að Alþingi yrði ekki að störfum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þingmenn ættu að eiga frumkvæðið í umræðunni og takast á um málið á Alþingi. Nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst tel ég enn skýrar að það hafi verið hárrétt að treysta þjóðinni fyrir þessari ákvörðun. Það var einnig rétt að gefa almenningi og frjálsum félagasamtökum svigrúm til að leiða umræðuna. Fólkið í landinu hefur stigið fram. Fundir hafa verið haldnir um allt land, ný félagasamtök hafa orðið til, mikið efni hefur verið gefið út og lífleg umræða átt sér stað á samfélagsmiðlum, vinnustöðum og heimilum. Þetta sýnir styrk íslensks lýðræðissamfélags. Stjórnmálamenn þurfa ekki alltaf að eiga sviðið. Stundum er hlutverk okkar að skapa umgjörðina, treysta fólkinu og hlusta. Sjálfstraust til að sjá samninginn Ég hef fylgst vel með umræðunni í sumar. Í mínum huga hefur hún að verulegu leyti snúist um að ólíkar fylkingar sjá fyrir sér mjög ólíka niðurstöðu úr samningaviðræðum við Evrópusambandið. Sumir telja að hægt verði að ná góðum samningi sem verji íslenska hagsmuni og skapi ný tækifæri. Aðrir telja nær útilokað að niðurstaðan verði ásættanleg. Báðir hópar færa rök fyrir máli sínu út frá þeirri niðurstöðu sem þeir telja líklegasta. En enginn veit fyrir víst hver niðurstaðan verður. Við vitum mikið um Evrópusambandið, regluverk þess og hvernig fyrri aðildarsamningar hafa verið gerðir. Við vitum að aðild myndi opna raunhæfa leið að lægri vöxtum með upptöku evru og færa Íslandi sæti við borðið þegar evrópskar reglur eru mótaðar og ákvarðanir teknar. Við vitum hins vegar ekki hvernig fullfrágenginn samningur Íslands liti út. Til þess þarf að ljúka viðræðunum. Það er því athyglisvert hversu hart þeir sem telja að niðurstaðan verði Íslandi afleit berjast gegn því að þjóðin fái að sjá samninginn. Ef niðurstaðan verður jafn slæm og þeir spá ætti fullfrágenginn samningur að styrkja málflutning þeirra. Íslenskur almenningur gæti þá séð svart á hvítu að aðild þjónaði ekki hagsmunum þjóðarinnar og fellt samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu. Málið væri útkljáð á grundvelli staðreynda í stað þess að við héldum áfram að deila um hvað hugsanlegur samningur gæti falið í sér. En nei-hliðin virðist ekki vilja láta reyna á eigin fullyrðingar. Hún vill að þjóðin geri einfaldlega eins og henni er sagt og loki á þennan valkost án þess að sjá samninginn. Auðvitað eru aðildarviðræður ekki einföld eða kostnaðarlaus upplýsingaöflun. Þær krefjast tíma og vinnu. En þegar svo stór og langvarandi ágreiningur er uppi um framtíðarstöðu og hagsmuni þjóðarinnar tel ég það verðugt verkefni að fá úr því skorið hvaða tækifæri og áskoranir samningur felur í sér og treysta svo þjóðinni til að taka afstöðu til hans. Treystum þjóðinni Fyrir mér er þetta kjarni málsins. Ríkisstjórnin treysti þjóðinni fyrir ákvörðuninni um hvort halda ætti aðildarviðræðunum áfram. Ég treysti þjóðinni einnig til að meta samninginn og taka afstöðu til hans að loknum viðræðum. Þess vegna mun ég segja já 29. ágúst. Ég vil sjá samninginn, hvort sem hann reynist góður eða slæmur. Ég vil að við metum raunverulega niðurstöðu út frá íslenskum hagsmunum í stað þess að taka ákvörðun út frá ólíkum spám um hvernig samningurinn gæti litið út. Ég tel líka skynsamlegt að halda valkostum opnum í þeirri óvissu sem ríkir í heiminum. Við vitum ekki hvernig næstu ár munu þróast í heimsmálum. Mun spennustigið halda áfram að hækka og átök aukast? Munu stórveldi halda áfram að sækjast eftir landsvæðum og auðlindum annarra ríkja? Mun tollastríðum og öðrum efnahagslegum þvingunum fjölga? Ég vona auðvitað að spennan minnki, samstarf aukist og meiri stöðugleiki skapist í heimsmálum. Öryggi og farsæld Íslands byggjast á samstarfi þjóða, alþjóðaviðskiptum og virðingu fyrir alþjóðalögum. En ég tel það þjóna íslenskum hagsmunum best að búa okkur undir fleiri en eina mögulega sviðmynd og tryggja að þjóðin eigi raunverulegan valkost ef hún telur aðild síðar þjóna hagsmunum Íslands. Höfum sjálfstraust til að sjá samninginn og treystum þjóðinni til að taka upplýsta afstöðu til hans. Fjölgum valkostum Íslands. Segjum já til að sjá 29. ágúst. Höfundur er Þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar