„Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. ágúst 2026 20:44 Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, öskrar á sína menn sem voru að tapa í fyrsta sinn síðan í maí. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, hrósaði Víkingum fyrir frammistöðu sína eftir að Íslandsmeistararnir unnu 4-2 útisigur gegn lærisveinum hans í Kaplakrika í kvöld. „
Þeir eru náttúrulega bara ótrúlega góðir í því sem þeir eru að gera,“ sagði Jóhannes Karl í leikslok. „Ég er svona mest svekktur kannski með fyrstu tvö mörkin sem þeir skora á okkur hérna í fyrri hálfleik. Við vitum að þeir eru með vinstrifótar mann hægra megin og Ármann Ingi gerir þetta virkilega vel. Fyrirgjöfin hjá honum er fín en við viljum koma í veg fyrir þetta. Við vitum líka að Niko Hansen fer alltaf á fjær og við hefðum átt að díla betur við það. Það er samt pínu heppnisstimpill yfir því hvernig boltinn hrekkur á Helga og auðvitað klára þeir það mjög vel,“ sagði Jóhannes og hélt áfram. „Svo er markið sem Gylfi skorar þannig að við töpum boltanum hátt á vellinum og fáum tækifæri til að vinna hann aftur, en töpum honum aftur. Við skoðuðum þetta mark í hálfleik og það er ekkert eðlilegur sprettur sem Gylfi tekur til að koma sér á vítapunktinn og Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir. Við ætluðum að reyna að koma í veg fyrir það. Þetta gerði leikinn gríðarlega erfiðan fyrir okkur því við náðum auðvitað forystunni og hefðum þá viljað vera með að minnsta kosti jafntefli í hálfleik. Svo ná þeir bara tökum á leiknum, en við áttum líka í basli með að pressa þá þegar leið á seinni hálfleikinn. Það var líka heppnisstimpill yfir þriðja markinu sem gjörsamlega drap leikinn.“ Fyrir leik talaði Jóhannes um að hans menn þyrftu að vera þéttir varnarlega til að eiga möguleika gegn Víkingum og það upplegg gekk framan af leik, eða alveg þar til Helgi Guðjónsson skoraði fyrsta mark gestanna. „Við vorum alveg að gera fína hluti þannig lagað. En við vissum alveg að við gætum ekki stoppað allt sem Víkingarnir ætluðu að reyna að gera. Það var pínu fyrirsjáanlegt hvað var að gerast í allavega fyrstu tveimur mörkunum og við hefðum getað gert töluvert betur þar. En auðvitað er þetta frábærlega mannað lið og þeir eru ótrúlega klókir í að sigla heim sigrum. Þeir gerðu það vel og áttu þennan sigur fyllilega skilið í dag, en ég hefði viljað gera þetta aðeins erfiðara fyrir þá.“ Þá viðurkennir hann að það hafi verið vonbrigði að ná ekki að setja meiri pressu á Víkingana eftir að hans menn minnkuðu muninn í 3-2. „Já, við hefðum klárlega viljað það. En þetta kostar auðvitað gríðarlega orku og við komum okkur alveg í fínar stöður hérna hægra megin áður en Víkingarnir skoruðu þriðja markið. Þá vorum við að komast í ágætar stöður og hefðum kannski átt að fá fleiri aukaspyrnur hérna eftir að Gils kom inn á. Hann kom með frábæra ógn hérna hægra megin og við hefðum kannski getað nýtt okkur það aðeins meira. En eins og ég segi þá drepa þeir þetta eiginlega með þessu þriðja marki og ná tökum á leiknum. Við vorum farnir að taka töluvert mikið af sénsum og aðeins að svindla í varnarleiknum til að freista þess að ná jöfnunarmarkinu. Úr varð bara að þeir kláruðu þetta með fjórða markinu sínu,“ sagði Jóhannes að lokum.
Víkingur Reykjavík FH Besta deild karla Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Haaland sló met Agüero Enski boltinn ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Sjá meira