Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2026 17:23 Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, heldur hér á Samfélagsskildinum eftir 3-0 sigur á Manchester City í dag. AP/Alastair Grant Knattspyrnustjórarnir Mikel Arteta hjá Arsenal og Enzo Maresca hjá Manchester City tjáðu sig eftir 3-0 stórsigur Arsenal á City í leiknum um Samfélagsskjöldinn í dag en Englandmeistarar Arsenal byrja tímabilið af miklum krafti.
Arsenal komst í 1-0 strax á fyrstu mínútu leiksins og byrjuðu því leikinn með hálfgerða forgjöf. „Viðbrögðin eftir markið voru góð. Áður en þeir skoruðu annað markið fengum við þrjú eða fjögur færi,“ sagði Enzo Maresca í sjónvarpsviðtali við TNT Sports. „Þetta er tap sem er sárt fyrir okkur en þetta er bara byrjunin,“ sagði Maresca. „Elliot [Anderson, nýr miðjumaður City] var aftur góður. Markið sem við fengum á okkur hafði áhrif á frammistöðu allra leikmanna,“ sagði Maresca. Martin Ödegaard lyftir Samfélagsskildinum eftir sannfærandi sigur á Manchester City í dag.AP/Alastair Grant „Þetta var virkilega góð frammistaða. Að sýna þann vilja sem við sýndum og þau viðbrögð, ég var virkilega hrifinn. Ég sagði þeim að ég hefði virkilega gaman af því að horfa á þá spila,“ sagði Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, í sjónvarpsviðtali við TNT Sports. Christos Tzolis lagði upp tvö mörk í sínum fyrsta keppnisleik með Arsenal og fékk hrós frá stjóranum. „Ég held að það sé hversu eðlilega hann hefur aðlagast hópnum og skilningur hans því hann er leikmaður sem tekur rétta ákvörðun þegar margir flýta sér og taka rangar ákvarðanir. Hann er mjög klár og nákvæmur. Í dag í þröngum svæðum tók hann rétta ákvörðun tvisvar og það skilaði tveimur mörkum,“ sagði Arteta. Úrslitin og öruggur sigur komu Arteta á óvart. „Ég er dálítið hissa. Við vorum með sérstakt undirbúningstímabil og átta til níu leikmenn til að prófa. Að spila á þann hátt sem við gerðum er afar áhrifamikið,“ sagði Arteta. Arteta var spurður um fjarveru Gabriel Martinelli og Gabriel Jesus sem voru ekki í hóp og hafa verið orðaðir við sölu frá félaginu. „Það er virkilega sorglegt að hafa þá ekki tiltæka. Ég hef barist við ensku úrvalsdeildina um að koma fleiri leikmönnum fyrir í hópnum. Þeir eiga skilið að vera í hópnum. Vonandi getum við breytt þeirri reglu,“ sagði Arteta.
Enski boltinn Arsenal FC Manchester City Mest lesið „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Sport Celtic og Rangers áfrýja Sport Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Sjá meira