Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 16. ágúst 2026 12:16 Óskar Hallgrímsson er búsettur í Kænugarði. Vísir/Samsett Íslenskur blaðamaður búsettur í Kænugarði var vakinn um þrjúleytið í nótt við sprengingar. Rússar gerðu umfangsmikla eldflauga- og drónaárás á úkraínsku höfuðborgina í nótt.
Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir stórfelldar dróna- og eldflaugaárásir Rússa í Úkraínu í nótt. Áfram skiptast ríkin á drónum og eldflaugum en úkraínsk drónaárás hæfði vöruhús netverslunarrisans rússneska Wildberries sem stóð í ljósum logum í morgun. Loftvarnasírenur ómuðu í Kænugarði fram eftir morgni. Slökkviliðsmenn í Kænugarði börðust í nótt við eld sem kviknaði á bókamarkaði eftir að hann varð fyrir rússneskum eldflaugum og drónum. Búið er að ráða niðurlögum hans en að sögn Vitalís Klitsjkó borgarstjóra særðust sex hið minnsta, þar á meðal barn, í úkraínsku höfuðborginni í nótt. Varnarlaus gagnvart skotflaugum Óskar Hallgrímsson blaðamaður og ljósmyndari segir ekki satt sem kemur fram víða í umfjöllun úti í heimi að loftárásir færist í aukana. „Loftárásir eru ekki að færast í aukana, heldur er gerðin af loftárásum að færast í aukana. Þessar svokölluðu skotflaugar er nær ómögulegt að skjóta niður með hefðbundnum loftvörnum. Þú þarft svokallaðar PAC-3 flaugar í Patriot-kerfi til þess að geta skotið það niður og það er bara mjög lítið úrval til af þeim og birgðir í heiminum eru að verða uppurnar, ekki bara hér í Úkraínu,“ segir hann. Drónar og eldflaugar hæfðu skotmörk í Kænugarði.AP Til útskýringar á er PAC-3 gerð af eldflaug sem notuð er til að skjóta niður skotflaugar og ofurhljóðfráar stýriflaugar. Patriot-kerfið er svo tæknin sem gerir slíkum flaugum kleift að hæfa ofurhljóðfráar flaugar odd í odd og sprengja þær. Eins og gefur að skilja er slík tækni hvorki ódýr né einföld í framleiðslu. „Þannig að við erum föst með það að vera varnarlaus gegn þessum árásum.“ Vöruhúsin mikilvægt hernaðarlegt skotmark Úkraínumenn hafa undanfarnar vikur og mánuði hæft fleiri vöruhús hins svokallaða rússneska Amazon sem hefur verulega heft flutningsgetu Rússa. Sextíu og tvö prósent af þeirra vöruhúsum eru búin að verða fyrir árás núna síðastliðið ár. Það er farið að hafa gífurleg áhrif á rússneskt hagkerfi. Fólk spyr sig hvort að þetta sé stríðsglæpur og af því þetta hefur mikil áhrif á almenna borgara en rússneski herinn notar þessi hús mikið fyrir að dreifa búnaði, bæði til þess að kaupa og selja í dróna, færa stríðsgögn, alls konar föt og dót fyrir herinn og rekstur. Það er stríðsrekstur, þannig að þetta er mjög löggilt skotmark upp á það að gera,“ segir Óskar. Vöruhús Wildberries í Koledínó í morgun.Telegram/Supernova Yfir Úkraínumönnum vofir þó möguleg herkvaðning í Rússlandi. „Það er mikill ótti við herkvaðningu af því að Rússland er líklega að fara að bæta um fimm hundruð þúsund mönnum í herinn og Úkraína er engan veginn tilbúin til þess að svara því á nokkurn hátt. Það er talað um að það sé verið að lækka aldurinn í herkvaðningu niður í 21 ár, sem er þvílíkt áfall fyrir Úkraínumenn hérna í landinu. Það er það sem að maður hefur mestar áhyggjur af,“ segir hann.
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fleiri fréttir Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Sjá meira