Sport

Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Audrey Werro fagnar hér Evrópumeistaramótsgullinu sínu í kvöld en eftir vonbrigðin og áfallið í gær var gleðin mikil í kvöld.
Audrey Werro fagnar hér Evrópumeistaramótsgullinu sínu í kvöld en eftir vonbrigðin og áfallið í gær var gleðin mikil í kvöld. Getty/Julian Finney

Svissneska hlaupakonan Audrey Werro komst í úrslit í 800 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum eftir mótmæli. Þar sló hún í gegn og fagnaði sigri í kvöld.

Með tímanum 1.54,81 mín. ýtti hún heimakonunni Keely Hodgkinson niður í silfursætið og bætti um leið mótsmetið. Rússneska hlaupakonan Olga Minejeva átti fyrra metið, 1.55,41 mín., frá Evrópumótinu árið 1982.

Werro bætti metið í erfiðum vindskilyrðum í Birmingham.

Werro datt í undanúrslitahlaupinu fyrr í vikunni. Eftir það lagði hún fram mótmæli og dómnefndin sá á myndbandsupptöku að franska hlaupakonan Anais Bourgoin snerti fót Werro rétt áður en hún féll.

Þar með fékk Werro samt sem áður að keppa í úrslitum og það tækifæri nýtti hún sér.

Hollenska hlaupakonan Femke Broeders-Bol hlaut bronsverðlaunin. Hún hefur áður í mörg ár einbeitt sér að 400 metra hlaupi en hefur nú skipt um grein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×