Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 08:01 Philippe Coutinho kemst bara í fimmta sæti listans þótt margir myndu setja hann mun ofar enda var vera hans hjá Barcelona algjör martröð eftir risakaupin frá Liverpool. Getty/Quality Sport Images/ Hver eru hörmulegustu félagsskipti fótboltans á þessari öld? Peter Graulund, knattspyrnusérfræðingur TV 2 Sport, setti saman slíkan lista yfir verstu félagaskipti á þessari öld.
Graulund ákvað að setja sjálfan sig í tíunda sæti listans. Það getur verið erfitt að skilgreina hvaða viðmið slíkur listi byggir á en Graulund leggur meðal annars mikla áherslu á sambandið milli kaupverðs og árangurs á vellinum. Grauland setur félagsskipti sín frá Bröndby til VfL Bochum árið 2001 í tíunda sæti listans. „Bochum keypti mig fyrir um fimmtán milljónir danskra króna (285 milljónir íslenskar) og þeir fengu fimm mörk til baka áður en ég fór endanlega þremur árum síðar. Það eru rúmar þrjár milljónir danskar á mark (57 milljónir íslenskar). Þeir höfðu svo sannarlega búist við einhverju öðru og það gerði ég líka. Auðvitað setti ég sjálfan mig á listann með smá gríni, en þar sem ég ætla að gagnrýna önnur kaup hér fyrir neðan, þá get ég alveg eins byrjað á hræðilegum kaupum þar sem ég er sjálfur í aðalhlutverki,“ sagði Grauland en það eru mun þekktari nöfn ofar á listanum. Verstu félagsskiptin að hans mati eru félagsskipti Eden Hazard frá Chelsea til Real Madrid. „Ég var sjálfur aðdáandi Hazard hjá Chelsea. Hann var svo frábær fótboltamaður og einn af þeim allra bestu í heiminum. Svo kom hann til Real Madrid þar sem hann var bæði latur, óþjálfaður og í yfirþyngd. Það var eins og hlutirnir ættu bara að gerast af sjálfu sér. Hvar var viljinn hjá þessum unga manni?“ spurði Grauland. „Þetta eru gríðarleg vonbrigði en líka vegna þess að ég hef virkilega elskað hann sem fótboltamann. En hjá Real vantaði hann allt og stórklúbburinn borgaði þó 900 milljónir danskra króna fyrir Belgann (17 milljarðar íslenskra króna), sem var algjört klúður frá upphafi til enda. Hazard var sá fyrsti sem mér datt í hug þegar ég átti að gera listann yfir misheppnuð kaup og þá á hann líka að vera númer eitt á honum,“ sagði Grauland. Í öðru sæti listans eru félagsskipti Joao Felix frá Benfica til Atletico Madrid, í þriðja sæti eru félagsskipti James Rodriguez frá Mónakó til Real Madrid eftir HM 2014, kaup Manchester United á Paul Pogba eru í fjórða sætinu og kaup Barcelona á Philippe Coutinho frá Liverpool ná bara fimmta sætinu. „FC Barcelona greiddi Liverpool einn milljarð danskra króna (19 milljarðar íslenskra króna) árið 2018 fyrir brasilísku stjörnuna. Það var þá sem við byrjuðum að sjá leikmannasölur á þessu stigi og það er líklega flestum ofviða að skilja að hann hafi verið svo mikils virði. Það var hann ekki heldur, því hann floppaði algjörlega og ferill hans hefur síðan verið ein samfelld niðurleið. Núna er hann líka án félags,“ sagði Grauland. Það má sjá allan listann hér.
Enski boltinn Liverpool FC FC Barcelona Real Madrid CF Manchester United Chelsea FC Spænski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Sjá meira