Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 07:01 Í vetur vakti hlaðvarpsserían Biskupsmálið eftir Gabríelu Bryndísi Ernudóttur mikla athygli. Um leið eru liðin fimmtán ár frá útkomu bókarinnar Ekki líta undan, þar sem ég sagði frá kynferðisofbeldi sem Ólafur Skúlason biskup, faðir minn, beitti mig. Þegar ég byrjaði að vinna úr afleiðingum ofbeldisins fyrir um tuttugu árum fann fljótlega fyrir sterkri ábyrgðartilfinningu. Ég taldi mig eina bera ábyrgð á því að uppgjör Biskupsmálsins færi fram. Ég vonaði jafnframt að slíkt uppgjör gæti orðið til góðs fyrir mig, fjölskyldu mína og kirkjuna og að aukin þekking á kynferðisofbeldi gæti varið börn gegn því að lenda í klóm kynferðisbrotamanna. Það tóku mér ekki allir fagnandi. Margir lögðu stein í götu mína en aðrir studdu mig dyggilega og uppgjörið fór fram. Kynferðisofbeldi felur alltaf í sér valdbeitingu. Við sem höfum orðið fyrir slíku þekkjum tilfinninguna að vera vanmáttug og valdalaus. Með því að berjast fyrir uppgjörinu fann ég að ég var einhvers megnug og það var, þrátt fyrir mótlæti, á vissan hátt valdeflandi. Þörfin fyrir að axla ábyrgð átti sér samt sársaukafyllri rætur. Hún spratt úr djúpstæðri sektarkennd og skömm. Slíkar tilfinningar eru algengar afleiðingar kynferðisofbeldis. Mér fannst ég á einhvern hátt samsek föður mínum ekki síst gagnvart Sigrúnu Pálinu og konunum sem stigu fram í febrúar 1996. En eitt þarf að vera alveg skýrt: Ábyrgðina á ofbeldinu bar faðir minn einn. Baráttunni er þó ekki lokið. Fimmtudaginn 20. ágúst verður haldið málþing undir yfirskriftinni Vald og ábyrgð. Þar ætlum við að skoða hvert okkur hefur miðað, hvar við stöndum í dag og hvert við viljum stefna. Við þurfum að nefna hlutina réttum nöfnum, líta ekki undan og láta þolendur ekki sitja uppi með ábyrgðina á því að stöðva gerendur. Það getur aldrei verið á ábyrgð þolanda að stöðva gerandann. Sú ábyrgð liggur hjá samfélaginu öllu og ekki síst réttarkerfinu. Við þurfum réttarkerfi sem þolendur geta treyst og samfélag sem hefur kjark til að takast á við erfið mál og gera þau upp. Ábyrgðin má aldrei lenda hjá þeim sem brotið var gegn. Höfundur er Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar