Sport

Sindri Hrafn kastaði sig í úr­slit

Andri Broddason skrifar
Sindri Hrafn Guðmundsson tryggði sig naumlega í úrslit í spjótkasti á EM í frjálsum íþróttum
Sindri Hrafn Guðmundsson tryggði sig naumlega í úrslit í spjótkasti á EM í frjálsum íþróttum FRÍ

Sindri Hrafn Guðmundsson náði að tryggja sig í úrslit í spjótkasti á EM í frjálsum íþróttum. Hann var í fyrri kasthóp og þurfti að bíða eftir seinni hópnum til að vita hvort hann kæmist áfram.

Sindri Hrafn Guðmundsson var í fyrri kastriðli í undankeppni spjótkasts á EM í frjálsum íþróttum. Fyrsta kastið hans fór 77,49 metra og var orðið ljóst að hann þyrfti að kasta lengra en það. Annað kastið hans Sindra Hrafns varð ógilt og því varð síðasta kastið mikilvægt.

Í síðasta kastinu fór spjótið hans Sindra Hrafns 79,21 metra og endaði í áttunda sæti síns undanriðils. Það komast tólf spjótkastarar í úrslitin og því þurfti hann að bíða og sjá hvernig seinni kastriðillinn myndi enda.

Í seinni umferð spjótkastsins voru aðeins þrír sem náðu að kasta lengra en Sindri Hrafn og var hann því ellefti inn í úrslitin. Persónulega metið hans er 82,55 metrar og á því Sindri Hrafn nóg eftir í úrslitunum.

Sindri Hrafn mun kasta í úrslitum spjótkastsins á laugardaginn og byrjar keppnin klukkan átta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×