Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Birgir Olgeirsson skrifar 13. ágúst 2026 09:59 Sveit Golfklúbbs Bolungarvíkur skrifar nýjan kafla í sögu félagsins í dag þegar hún keppir í fyrsta sinn í efstu deild Íslandsmóts golfklúbba karla. Efri röð frá vinstri: Jón Arnar Sigurðsson, Óli Rafn Kristinsson, Ernir Steinn Arnarson, Anton Helgi Guðjónsson, Rögnvaldur Magnússon og Daði Valgeir Jakobsson Neðri röð frá vinstri: Emil Þór Ragnarsson, Ragnar Már Ríkharðsson, Flosi Valgeir Jakobsson og Davíð Gunnlaugsson. Golfklúbbur Bolungarvíkur hóf í morgun í fyrsta skipti í sögu félagsins keppni í efstu deild Íslandsmóts golfklúbba karla. Bolvíkingar fengu enga mjúka lendingu meðal þeirra bestu því fyrsti mótherjinn var sjálfur Golfklúbbur Reykjavíkur, ríkjandi Íslandsmeistari og sigursælasta félag í sögu keppninnar.
Viðureignin hófst á Strandarvelli á Hellu klukkan átta í morgun. Leiknir eru tveir fjórmenningar og þrír tvímenningar og fór síðasti leikurinn af stað klukkan 8.40. GR varð Íslandsmeistari golfklúbba karla í 26. sinn í fyrra. Síðar í dag, klukkan 14, mæta Bolvíkingar Golfklúbbi Akureyrar og klukkan átta í fyrramálið tekur við Golfklúbbur Mosfellsbæjar. Tvö efstu lið riðilsins komast í undanúrslit en hin tvö leika um fimmta til áttunda sætið. Litli klúbburinn kominn meðal þeirra bestu Stærðarmunurinn á GBO og félögunum þremur sem Bolvíkingar mæta í riðlinum er töluverður. Golfklúbbur Reykjavíkur telur um 3.400 félagsmenn, Golfklúbbur Mosfellsbæjar um 2.375 og félagsmenn Golfklúbbs Akureyrar eru um 1.060. Í Golfklúbbi Bolungarvíkur eru félagsmenn um 140 talsins. Þeim hefur þó fjölgað gríðarlega á skömmum tíma. Fyrir aðeins þremur árum voru um 40 manns í félaginu. Félagatalan hefur því meira en þrefaldast og fjölgunin nemur um 250 prósentum. GR er eftir sem áður um 24 sinnum fjölmennara en GBO, GM um sautján sinnum fjölmennara og GA rúmlega sjö sinnum fjölmennara. Bolvíkingar hafa hins vegar klifið deildakerfið hratt undanfarin ár. GBO vann 5. deild árið 2020, 3. deild árið 2023 og 2. deildina í fyrra. Nú er litli klúbburinn úr Syðridal kominn alla leið í hóp þeirra bestu. „Mig hefði aldrei órað fyrir þessu“ Einn þeirra sem upplifa tímamótin með sérstökum hætti er Rögnvaldur Magnússon, fæddur og uppalinn Bolvíkingur, PGA-golfkennari og forstöðumaður Golfferða Golfskálans. Rögnvaldur Magnússon við styttuna af Payne Stewart við 18. flötina á Pinehurst No. 2 í Norður-Karólínu, þar sem Stewart vann Opna bandaríska meistaramótið árið 1999. Rögnvaldur er PGA-golfkennari, lauk PGA-námi árið 2012 og hefur starfað við golfkennslu um árabil. Hann er nú forstöðumaður Golfferða Golfskálans. Rögnvaldur tók sín fyrstu skref í golfi á Syðridalsvelli og hefur síðan gert golfið að stórum hluta af starfsævinni. Hann hefur starfað við golfkennslu um árabil og getið sér gott orð sem golfkennari auk þess að leiða golfhópa erlendis. „Ég tók mín fyrstu skref í golfi heima í Bolungarvík og mig hefði aldrei órað fyrir því þá að Golfklúbbur Bolungarvíkur ætti einn daginn eftir að vera kominn í efstu deild og keppa við stærstu og bestu golfklúbba landsins,“ segir Rögnvaldur. Hann segir það sérstaka tilfinningu að vera nú sjálfur hluti af sveitinni á þessum tímamótum. „Fyrir mig sem Bolvíking og golfara er þetta bara draumur að rætast. Það er ótrúlega gaman að sjá hvað klúbburinn hefur vaxið og að við séum komin alla þessa leið.“ Íslandsmeistararnir mun sterkari á pappírnum Níu kylfingar eru skráðir í sveit Golfklúbbs Bolungarvíkur. Það eru Flosi Valgeir Jakobsson, Davíð Gunnlaugsson, Emil Þór Ragnarsson, Ernir Steinn Arnarsson, Rögnvaldur Magnússon, Anton Helgi Guðjónsson, Jón Arnar Sigurðarson, Ragnar Már Ríkarðsson og Daði Valgeir Jakobsson. Daði er jafnframt liðsstjóri sveitarinnar og Óli Rafn Kristinsson aðstoðarliðsstjóri. Á móti þeim standa kylfingar úr nokkrum stærstu og öflugustu golfklúbbum landsins. Í sveit GR eru meðal annars Hákon Örn Magnússon, Sigurður Bjarki Blumenstein og Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Rögnvaldur segir engan í herbúðum Bolvíkinga velkjast í vafa um að sveitin sé lakari á pappírnum en flestir mótherjarnir. „Við vitum alveg hvernig þetta lítur út á blaði. Við erum litli klúbburinn og erum að mæta frábærum kylfingum frá miklu stærri félögum. En við erum með stórt hjarta, það er gríðarlega góð gleði í hópnum og við höfum engu að tapa.“ Það sé einmitt hluti af styrkleika sveitarinnar. „Við erum góðir vinir, okkur finnst gaman að vera saman og við ætlum að njóta þess að vera þarna. Svo förum við bara í hvern leik með það að markmiði að vinna.“ Allt getur gerst í holukeppni Fyrirkomulag Íslandsmótsins gefur Bolvíkingum líka ákveðna ástæðu til bjartsýni. Keppt er í holukeppni en ekki hefðbundnum höggleik. Í hverri viðureign eru leiknir tveir fjórmenningar og þrír tvímenningar og hvert einvígi gefur eitt stig. Þar skiptir heildarskor kylfingsins yfir hringinn engu máli. Ein hola vinnst í einu og slæm hola getur verið gleymd um leið og komið er á næsta teig. „Það er einmitt það skemmtilega við holukeppnina. Þú þarft ekki að vera betri kylfingur en maðurinn á móti þér alla daga ársins. Þú þarft að vera betri en hann þennan dag,“ segir Rögnvaldur. „Sagan hefur sýnt okkur aftur og aftur að í holukeppni getur hreinlega allt gerst. Við vitum að við erum minni spámenn, en það er ekkert búið að vinna þessa leiki áður en þeir hefjast.“ Hituðu upp með Albatross Stemningin í hópnum virðist ekki heldur hafa verið þrúgandi kvöldið fyrir stærsta verkefni í sögu klúbbsins. Bolvíkingarnir ákváðu nefnilega að hita upp fyrir mótið með því að horfa saman á íslensku gamanmyndina Albatross. Valið var ekki tilviljun. Myndin gerist að stórum hluta á Syðridalsvelli í Bolungarvík og segir frá Tómasi, ungum manni úr Reykjavík, sem eltir kærustuna vestur á firði og ræður sig í sumarvinnu hjá Golfklúbbi Bolungarvíkur. Þegar sambandið fer út um þúfur situr hann eftir í Bolungarvík innan um skrautlegar persónur á golfvellinum. Yfirmaður klúbbsins í myndinni á sér jafnframt stóran draum fyrir litla völlinn í Syðridal: að fá sveitakeppni golfklúbba til Bolungarvíkur. Rúmum áratug síðar er raunverulega sveitin úr Syðridal komin öllu lengra en persónurnar í Albatross hefðu kannski þorað að láta sig dreyma um. Í morgun gekk Golfklúbbur Bolungarvíkur út á völlinn í fyrsta sinn í deild þeirra bestu og beið þar ekkert minna verkefni en ríkjandi Íslandsmeistararnir sjálfir.
Golf Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Öll lið lenda í þessu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti „Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Guðrún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið Dagbjartur áfram í frábærum gír í titilvörninni „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Elsa Maren með sex fugla á síðustu sjö holunum Gæti skákað föður sínum: „Þetta verður spennandi“ Á heimavelli og freista þess að ná montrétti fjölskyldunnar Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Tíu fyrrum Íslandsmeistarar keppa á Íslandsmótinu í golfi í ár Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Gagnrýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn Sjá meira