Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. ágúst 2026 07:31 Englandsmeistarar Arsenal halda áfram að leita að liðsstyrk segir Mikel Arteta, knattspyrnustjóri liðsins. epa/TOLGA AKMEN Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að Englandsmeistararnir séu enn að leita að leikmönnum fyrir titilvörn næsta tímabils.
Arsenal gekk frá kaupunum á Bruno Guimaraes frá Newcastle United fyrir 75 milljónir punda um helgina. Félagið hefur einnig fengið Christos Tzolis og Illan Meslier en Arteta segir að Skytturnar séu enn með augun opin fyrir frekari liðsstyrk. „Við viljum gera meira því í hvert sinn sem við höfum möguleika á því að bæta hópinn verðum við að gera það,“ sagði Arteta. „Við erum að reyna það af fullum krafti. Málið á markaðnum er að þetta veltur ekki bara á þér. Við erum alveg meðvitaðir um það. En nálgunin, viljinn og löngun félagsins, það er óumdeilanlegt. Við viljum reyna að gera það. En við getum ekki lofað því að við munum gera það því það veltur ekki bara á okkur.“ Arteta segir þó að ekki séu margir leikmenn í boði sem myndu bæta lið Arsenal verulega. Englandsmeistararnir voru sterklega orðaðir við Vinícius Júnior sem endaði á því að skrifa undir nýjan samning við Real Madrid. Þá ku Arsenal hafa áhuga á Julián Alvarez hjá Atlético Madrid og Bradley Barcola hjá Paris Saint-Germain. Arsenal gerði 1-1 jafntefli við Como í æfingaleik í gær en hafði betur í vítaspyrnukeppni, 4-3. Arsenal mætir nýliðum Coventry City í upphafsleik ensku úrvalsdeildarinnar föstudaginn 21. ágúst.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Sjá meira