Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 12. ágúst 2026 16:39 Sölvi Geir Ottesen ánægður með sigurinn í kvöld. vísir/Diego Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, staðfestir að Gunnar Vatnhamar, varnarmaður liðsins, yfirgefi félagið á næstunni. Hann gerir ráð fyrir að Gunnar fari í lok mánaðar.
Fjallað hefur verið um það að undanförnu að Gunnar sé á förum til Vejle í Danmörku. Skiptin hafa ekki verið formlega staðfest en það er ljóst að Gunnar mun halda til Danaveldis á næstunni. Sölvi Geir staðfestir að Gunnar sé á förum en kveðst ekki 100 prósent viss hvenær. „Ég er ekki viss. Það er svo mikið að gera hjá okkur núna að ég hef ekki tíma til að spá í þessa hluti. Það er bara næsti leikur. Ég veit að hann spilar allavega næsta leik,“ sagði Sölvi Geir við Sýn Sport eftir æfingu dagsins fyrir leik við Thun í Evrópudeildinni á morgun. Gunnar hefur verið einn allra besti varnarmaður deildarinnar undanfarin ár og það verður söknuður af honum í Víkinni. „Ekki spurning. Eins og þú segir sjálfur, einn besti varnarmaður deildarinnar, einn besti varnarmaður frá upphafi í deildinni myndi ég segja. Titlarnir sem hann er búinn að vinna, frammistaðan sem hann er búinn að sýna og svo er persónuleikinn hans frábær,“ Gunnar Vatnhamar hefur verið lykilmaður hjá Víkingum en heldur á vit nýrra ævintýra í lok mánaðar.Vísir/Pawel Hann gleður alla, er góður í klefanum og er gull af manni. Það verður erfiðara að segja bless við persónuna heldur en fótboltamanninn,“ segir Sölvi Geir. Samkvæmt heimildum Sýnar mun Gunnar klára komandi törn, umspilsleiki Víkinga í Evrópu sem fram fara í næstu og þarnæstu viku og leik við KR í deildinni þann 30. ágúst. Er það nærri lagi? „Það hljómar nærri lagi. Ég hef ekki séð þetta svart á hvítu á samningnum. Það eru líkur á því að hann klári það, þá verða umspilsleikirnir í Evrópu búnir og komið að úrslitakeppninni í Bestu,“ segir Sölvi Geir. Ummælin má sjá í spilaranum. Nánar verður rætt við Sölva Geir í Sportpakkanum á Sýn í kvöld. Víkingur mætir Thun frá Sviss í síðari leik liðanna klukkan 17:30 á morgun. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland.
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Tryggvi Hrafn klárar tímabilið með Val „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell „Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Fannst ÍBV brjóta fyrir vítadóminn „Jákvætt að tengja saman tvo sigra“ „Ákvörðun dómarans verðskuldar ekki komment“ Uppgjörið: KA - FH 0-1 | Úr fallsæti og auka á þjáningar norðanmanna Uppgjörið: Víkingur - ÍBV 2-2 | Annað misstig meistaranna Uppgjörið: ÍA - Þór 2-0 | Þrír í röð án taps hjá ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Árni gekk í það heilaga og fékk frí Sjá meira