Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. ágúst 2026 12:03 Jói Pé og Molly hafa verið saman í um þrjú ár og eru farin að hugsa sig til hreyfings. Tónlistarmaðurinn Jóhannes Patreksson, betur þekktur sem Jói Pé, og leikkonan Molly Carol Birna Mitchell eru að selja 101 fermetra eign að Miðhrauni 14 í Garðabæ. Um er að ræða skrifstofuhæð auk millilofts á annarri hæð og er ásett verð 49, 5 milljónir. Bannað er að búa í íbúðinni nema eigendur búi þar sjálfir ef brunavarnir eru fullnægjandi og engin börn á heimilinu.
Eignin er innréttuð sem íbúðarhúsnæði en skráð sem skrifstofuhæð á annarri hæð húss sem var byggt árið 2002. Hæðin skiptist í alrými sem í er stór stofa og eldhús, baðherbergi með flísalögðum veggjum, parketlagða stofu með viðarklæddu lofti sem er notuð sem hljóðstúdíó, milliloft sem er ekki skráð inn í stærð eignarinnar og svo geymsluloft yfir hljóðstúdíóinu. Rýmið hefur allt nýlega verið innréttað upp á nýtt, gólf verið flotuð og baðherbergið nýútbúið. Öflugt nýtt loftræstikerfi með inn- og útblæstri er í stúdíói á neðri hæð og á svefnlofti á efri hæð, en hægt að tengja það við fleiri rými í eigninni. Alrýmið er býsna stórt. Skipt var um gler og glugga á rýminu auk útidyrahurðar sumarið 2026. Að utan lítur húsið vel út en fyrirhugað er að ráðast í þakviðgerðir á næsta ári. Lóðin er fullfrágengin, malbikuð og með fjölda bílastæða. Samkvæmt fundargerð aðalfundar húsfélagsins frá 2026 er búið að fara yfir brunamál, slökkviliðið gaf frest út júlí til að ganga frá samtengdu brunakerfi og búið að taka tilboði í það en beðið eftir íhlutum í kerfið frá Úkraínu. „Klárt bann er við að búa í húsnæðinu en ekki gerð athugasemd við að eigendur búi sjálfir þar ef brunavarnir eru fullnægjandi og það eru ekki börn á heimilinu,“ segir jafnframt í fundargerðinni. Sömuleiðis er bannað að leigja út rýmið sem íbúðarhúsnæði en leyfilegt að leigja það út sem atvinnuhúsnæði. Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis og sjá myndir hér að neðan: Parið hefur náð að gera stofuna nokkuð huggulega. Í alrýminu er stofa, borðstofa og eldhús. Eldhúsið er með flottri innréttingu. Hljóðstúdíóið er vel útbúið fyrir lagagerð. Hljóðstúdíóið er parketlagt með viðarlofti og nægu skápapláss. Baðherbergið er nýútbúið. Gengið er upp steinteppalagðan stálstiga á milliloftið. Á milliloftinu er lítið svefnherbergi. Gengið er upp þennan stiga í íbúðina. Svona lítur húsið út að utan.
Fasteignamarkaður Garðabær Hús og heimili Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira