Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2026 19:20 Gríski kaupsýslumaðurinn Evangelos Marinakis keypti Nottingham Forest árið 2017. Nú leitar hann réttar síns fyrir dómstólum. Getty/Michael Regan Evangelos Marinakis, eigandi Nottingham Forest, hefur ákveðið að lögsækja Crystal Palace vegna borða sem stuðningsmenn þeirra afhjúpuðu og sýndi eiganda Nottingham Forest halda byssu að höfði miðjumannsins Morgan Gibbs-White.
Lögmenn Marinakis lögðu fram meiðyrðakröfuna fyrir Hæstarétti í dag þar sem CPFC Limited er skráð sem annar af tveimur stefndu. Á borðanum, sem sást í 1-1 jafntefli liðanna í ensku úrvalsdeildinni á Selhurst Park í ágúst síðastliðnum, stóð: „Herra Marinakis kemur ekki nálægt fjárkúgun, hagræðingu úrslita, fíkniefnasmygli eða spillingu.“ Marinakis hefur staðfastlega neitað öllum rangindum í tengslum við slíkar ásakanir. Evangelos Marinakis is suing Crystal Palace for a banner unfurled by their fans depicting the Nottingham Forest owner holding a gun to midfielder Morgan Gibbs-White's head.Marinakis' lawyers lodged the defamation claim in the High Court on Monday, with CPFC Limited listed as… pic.twitter.com/uxpLUnbfCf— Match of the Day (@BBCMOTD) August 10, 2026 Í nóvember 2025 ákærði enska knattspyrnusambandið Crystal Palace fyrir að hafa ekki tryggt að stuðningsmenn hegðuðu sér ekki á óviðeigandi, móðgandi, særandi eða ögrandi hátt. Þótt borðinn hafi ekki verið tilgreindur sem ástæða ákærunnar gilda strangar reglur um skilaboð sem innihalda meiðandi, pólitísk og móðgandi slagorð. Enski landsliðsmaðurinn Gibbs-White var nálægt því að yfirgefa Forest síðasta sumar eftir að Tottenham virtist hafa virkjað sextíu milljóna punda riftunarákvæði. En hann skrifaði undir nýjan samning um að vera áfram hjá Forest og ræddi ákvörðun sína í viðtali ásamt Marinakis. Forest, í eigu Marinakis, hafði tekið sæti Crystal Palace í Evrópudeildinni á síðasta tímabili eftir að félagið frá Suður-London var fellt niður í Sambandsdeildina fyrir að brjóta reglur UEFA um fjölklúbbaeignarhald. 🚨💣 BREAKING: Nottingham Forest owner Marinakis files defamation suit against Crystal Palace.Claim relates to the banner displayed during a match between the two clubs in August last year.@TheLawyermag pic.twitter.com/t0dKKnr6Wz— Palace Report (@PalaceReport) August 10, 2026
Enski boltinn Crystal Palace FC Nottingham Forest Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira