Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar 10. ágúst 2026 11:30 Ameríski tæknirisinn Meta, móðurfyrirtæki Facebook, Instagram og fleiri miðla, hefur sett á markað snjallgleraugu, sem búin eru myndavél og gervigreind. Hægt er að virkja gleraugun með raddstýringu og gervigreind lýsir því sem fyrir augu ber. Í nóvember í fyrra birtist viðtal á Vísi við Helga Hjörvar, þar sem hann lýsti því hve gagnleg slík gleraugu gætu reynst blindum og sjónskertum og hafði kynnst því af eigin raun. Höfundur þessa pistils dregur það ekki í efa, en það er engu síður margt umhugsunarvert í tengslum við þessi gleraugu. Á gervigreindaröld eru gögn orðin gulls ígildi og Meta mun án efa safna þeim gögnum sem notendur gleraugnanna búa til. Sjálfsagt verður það sagt notendum til hægðarauka að gervigreindin þekki notkunarsögu þeirra (einnig af Facebook, Instagram o.s.frv.) og geti þannig veitt áreiðanlegri og betri svör. Þetta þekkjum við flest sem notendur ýmiss konar stafrænnar þjónustu. Raunar er með ólíkindum með hvílíku andvaraleysi við umgöngumst gögn okkar. Tortryggni í garð stjórnvalda og hins opinbera fer vaxandi, en um leið veitum við, eða í það minnsta flestir, hinum og þessum einkaaðilum aðgang að öllum okkar helstu upplýsingum, í dagatölum, tölvupósti, ryksugum (!), með því sem við segjum og skrifum, og upplýsum um staðsetningu okkar hverju sinni. Í þeim tilvikum höfum við jafnan veitt samþykki okkar fyrir því þó að það við gerum það stundum með óbragð í munni. Þannig má segja að við höfum beint myndavélinni að okkur sjálfum, en hvað gerist þegar aðrir fara að beina myndavélinni að okkur? Gleraugu Meta eru framleidd í samstarfi við gleraugnaframleiðandann Ray-Ban og líta út eins og hver önnur gleraugu eða sólgleraugu. Þegar upptaka er í gangi blikkar lítið ljós – viti menn, til eru leiðir til að slökkva á því – en það er ekki jafnáberandi og þegar síma (eða myndavél) er haldið á lofti. Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að hugsa sér aðstæður þar sem notkun slíkra gleraugna væri óæskileg. Þar að auki er það óþægileg tilhugsun að þurfa stöðugt að eiga von á því að vera „í beinni“ og vita ekki af því. Það er enn fremur ljóst að hér er mikið í húfi fyrir tæknirisann Meta. Ólíkt Apple og Google, sem framleiða tæki og búnað sem vörur þeirra sjálfra nýtast í, hefur Meta hingað til þurft að koma vörum sínum á framfæri í búnaði annarra, sem fyrirtækið hefur ekki stjórn á. Ef gleraugun slá í gegn væri því öðruvísi farið og fyrirtækið eignaðist jafnframt nýja auðlind gagna. Um leið blasir við að fleiri fyrirtæki munu fylgja í kjölfarið og framleiða áþekk gleraugu, sem blikka kannski ekki endilega þegar þau taka upp. Vandamálið er því ekki einskorðað við Meta heldur er það tæknin sem slík sem er umhugsunarverð. Þróunin er ógnarhröð og löggjafinn svifaseinn. Þessum pistli er ekki ætlað að leggja til boð og bönn heldur vekja lesendur til umhugsunar. Umræða um þessi tæki hefur ekki verið mikil á Íslandi til þessa, en nú virðist ekki seinna vænna að hefjast handa til að bregðast við þeim áskorunum sem tæki sem þessi munu hafa í för með sér. Höfundur starfar í máltækni. Nokkrar greinar um málefnið: https://www.theguardian.com/technology/2026/aug/09/i-kept-catching-people-giving-me-dirty-looks-the-backlash-against-meta-smart-glasses Frétt Guardian um gleraugun og umdeilda notkun þeirra https://www.nrk.no/artikkel/forby-ki-brillene-1522846 Norskur lögfræðingur kallar í þessum skoðanapistli eftir því að gleraugun verði bönnuð og hefur áhyggjur af uppgangi eftirlitskapítalisma https://www.srf.ch/news/gesellschaft/digitale-privatsphaere-wie-merke-ich-ob-mich-jemand-mit-smart-glasses-filmt Viðtal við ritstjóra tæknimála á svissneska ríkisútvarpinu, SRF, um ýmislegt sem lýtur að gleraugunum https://www.visir.is/g/20252807147d/-manni-lidur-bara-eins-og-madur-se-i-james-bond-mynd-Viðtal Vísis við Helga Hjörvar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar