Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Valur Páll Eiríksson skrifar 7. ágúst 2026 13:00 Matthías Guðmundsson er með Valskonur á botni deildarinnar en getur bætt úr því í kvöld. VÍSIR/VILHELM „Þetta verður hörkuleikur. Þetta eru tvö lið að mætast sem eru ekki á stað sem þau vilja vera á. Það er einfaldlega staðreyndin. Þau eru þar,“ segir Matthías Guðmundsson, þjálfari kvennaliðs Vals í fótbolta, um leik kvöldsins við Víking í Bestu deild kvenna.
Það er sannarlega staðan að Valur og Víkingur eru á stað sem þau vilja ekki vera á. Bæði eru í fallsæti, Valur á botninum, og gerðu fáir ráð fyrir því að fallhætta blasti við liðunum tveimur áður en tímabilið hófst. Hvernig metur Matthías stöðuna sem hans konur eru í? „Þetta er krefjandi, þetta er verkefni. Við erum þarna og það er algjörlega í okkar höndum að breyta því og koma okkur á betri stað. Í dag tökumst við á við Víking og við þurfum að eiga mjög góðan leik til að vinna þær. Við getum alveg gert það,“ segir Matthías. Víkingur hefur styrkt sig mjög á markaðnum. Telma Ívarsdóttir kom fyrir síðasta leik og þá hafa bæst við tvær í vikunni, ein frá Finnlandi og önnur frá Danmörku, sem gæti reynst Valskonum erfiðara fyrir að lesa í andstæðing kvöldsins. „Þær fengu náttúrulega til liðs við sig Telmu, landsliðsmarkvörð, sem var sterk á móti Þrótti. Hún styrkir þær mikið og tvo bættu þær við tveimur leikmönnum. Ég get lítið tjáð mig um þá leikmenn og er fyrst og fremst að hugsa um okkur og mitt lið,“ segir Matthías og bætir við: „Hvað við þurfum að bæta, hvað við þurfum að gera í kvöld til að eiga góða frammistöðu sem á þá eftir að skila sér í góðri niðurstöðu.“ Hvað þarf þá helst að laga og bæta til að frammistaðan og niðurstaðan verði góð í kvöld? „Við þurfum að bæta að þegar illa bjátar á, þegar við fáum á okkur mark, eða andstæðingurinn á góðan kafla – við þurfum að standa það af okkur og láta það ekki slá okkur út af laginu. Síðustu tveir leikir á undan hafa verið með kafla, eins og gegn Fram þar sem er tíu mínútna kafli sem fer algjörlega með leikinn,“ „Þetta er spurning um einbeitingu og endalaust að berja trú í mannskapinn. Við erum með gott lið, erum mjög góðar í fótbolta. Það er bara að njóta þess að sýna hvað við erum góð og ýta til hliðar öllu sem er í gangi aðeins og komast út á völl og njóta þess að vera besta útgáfan af sjálfum þér,“ segir Matthías. Leikur Vals og Víkings er klukkan 19:15 í kvöld og verður í beinni á Sýn Sport Ísland. Klukkan 18:00 eru leikir Grindavík-Njarðvík á móti ÍBV og Þór/KA gegn Fram í beinni og Bestu mörkin gera umferðina upp að botnslagnum loknum, klukkan 21:20 á Sýn Sport Ísland.
Valur Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira