Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Valur Páll Eiríksson skrifar 5. ágúst 2026 08:02 Jóhannes Kristinn Bjarnason, FH. Vísir/Bjarni Jóhannes Kristinn Bjarnason kann vel við sig hjá FH eftir lánsskipti frá Víkingi á dögunum. Í kvöld mætir hann uppeldisfélaginu KR í Krikanum.
Það er þónokkur spenna fyrir leik kvöldsins milli FH og KR. Stuðningsmenn KR hafa beðið eftir að sjá sitt lið spila í rúmar tvær vikur og þó FH sé á botninum hafa verið batamerki á leik liðsins sem hefur ekki tapað fótboltaleik í deildinni í síðustu sjö leikjum. Spennan er þó hvað mest hjá Jóhannesi Kristni Bjarnasyni, sem er uppalinn hjá KR, og var leikmaður liðsins þar til í fyrra. Hann var leikmaður Víkings framan af tímabili en mun í kvöld mæta KR í fyrsta sinn á ferlinum. „Það er bara ótrúlega spennandi. Ég er mjög spenntur fyrir leiknum og vonandi náum við í þrjú stigin og getum strítt þeim eitthvað,“ segir Jóhannes í Sportpakkanum á Sýn. Þá sé þó skrýtið að hafa eytt vikunni í að leikgreina andstæðing sem hann var hluti af fyrir skömmu síðan. „Jú, auðvitað er það skrýtið að mæta öllum strákunum sem þú varst að spila með fyrir ári síðan. En svo þarftu bara að gera þig tilbúinn í leikinn og berjast fyrir liðið þitt. Þá gleymirðu öllu svona,“ segir Jóhannes. Líður vel í Krikanum Jóhannes hefur spilað tvo leiki fyrir FH eftir komuna til liðsins á láni frá Víkingi í síðasta mánuði. Hann þekkir ágætlega til, enda þjálfari liðsins föðurbróðir hans og nafni, Jóhannes Karl Guðjónsson. Það hafði sitt að segja um að hann hafi endað í Krikanum. „Það er mjög næs. Hann og pabbi hugsa fótbolta mjög svipað, það eru góðar pælingar í því sem hann gerir. Ég er mjög sáttur við hann og sáttur við liðið,“ segir Jóhannes Kristinn. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan. FH og KR mætast í Bestu deild karla klukkan 19:15 í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland. Öll 17. umferð deildarinnar verður gerð upp í Stúkunni strax í kjölfarið, klukkan 21:20.
FH Besta deild karla KR Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Aron Þórður hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sjá meira