„Íslenski Haaland“ með þrennu í fyrsta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 11:02 Bjarki Hrafn Garðarsson fór vel af stað með unglingaliði Dortmund. @bvb09nachwuchs Bjarki Hrafn Garðarsson er spennandi íslenskur framherji og hann er þegar farinn að búa til fyrirsagnir hjá þýska félaginu Borussia Dortmund.
Bjarki Hrafn, sem er sextán ára síðan í febrúar, yfirgaf Stjörnuna fyrr í sumar og samdi við þýska stórliðið. Hann byrjar að spila með unglingaliðum félagsins en með góðri frammistöðu gæti hann síðan bankað á dyr aðalliðsins. View this post on Instagram A post shared by FutureBallersDE (@futureballersde) Fyrir fyrsta leikinn voru stuðningsmenn Dortmund farnir að bera hann saman við norska framherjann Erling Braut Haaland. Ástæðan er ekki aðeins hæfileikarnir og leikstaðan heldur einnig sú staðreynd að þeir eru líkir á velli og íslenski framherjinn er örvfættur, eldsnöggur og 194 sentimetrar á hæð. Ekki mun framganga Bjarka í fyrsta leik með átján ára liði Borussia Dortmund slökkva á slíkum samanburði. Hann lék sinn fyrsta opinbera leik í bikarleik á móti Holstein Kiel um helgina. Leikurinn tapaðist reyndar 4-3 en Bjarki Hrafn skoraði öll þrjú mörk Dortmund. Þetta var draumabyrjun fyrir hann sjálfan jafnvel þótt úrslitin hafi ekki verið eins og hann vonaðist eftir. Bjarki jafnaði fyrst metin með skalla á 40. mínútu en hin mörkin hans komu eftir að Dortmund lenti 4-1 undir. Hann skoraði með hægri fótar skoti úr markteignum á 70. mínútu þegar hann fylgdi eftir eigin skalla og svo með vinstri fótar skoti á 83. mínútu eftir laglegan snúning þegar boltinn datt fyrir hann í teignum. Hvorki honum né liðsfélögum hans tókst hins vegar að jafna metin á lokamínútunum og Dortmund er úr leik í bikarnum. Mörkin má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by BVB-Nachwuchs (@bvb09nachwuchs)
Þýski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira