Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Andri Broddason skrifar 3. ágúst 2026 08:01 Niklas Castro gaf myndavélinni puttann eftir að hann skoraði gegn sínum gamla stjóra, Frey Alexanderssyni. Brann Niklas Castro skoraði fyrsta mark Brann þegar liðið tók á móti Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Hann fagnaði markinu með því að gefa myndavélinni puttann.
Freyr Alexandersson, þjálfari Rosenborg, var mættur á sinn gamla heimavöll í gær aðeins tveimur mánuðum eftir að hafa verið látinn fara frá Brann. Hann náði ekki að sækja sigur á sínum gamla heimavelli en Brann skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma. Niklas Castro skoraði fyrsta mark leiksins á fjórtándu mínútu en hann fagnaði markinu með því að gefa myndavélinni löngutöng. Hann meinti þó ekkert illt með gjörðum sínum. Ástæðan fyrir því að hann gerði þetta er vegna þess að hann tapaði veðmáli við félaga sinn. Brann 1-0 Rosenborg⚽ 14' Niklas Castro🅰️ Niklas Jensen Wassberg#Eliteserien #Brann #RBK pic.twitter.com/TVrvIjs3du— Eliteserien Wizard (@ElitWizard) August 2, 2026 Eirik Horneland, þjálfari Brann, tók ekki eftir atvikinu en eftir leik var honum bent á það. Hann sagði í viðtali við NRK að þetta væri ekki sniðugt. „Mér finnst þetta ekki skynsamlegt. Mér finnst þetta ekki heldur skynsamlegt veðmál. Það er betra að fagna á jákvæðan og góðan hátt. Ég mun tala við Castro og fá hann til að gera þetta ekki aftur.“ Í reglum norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta kemur skýrt fram að ef leikmenn segja eða gera eitthvað móðgandi sé það gult spjald. Dómarinn gerði þó ekkert í þessu atviki og leyfði leiknum að halda áfram. Seinna í leiknum fékk Castro gult spjald og hefði þá fengið rautt ef hann hefði fengið spjald fyrir að sýna löngutöngina. Myndband af markinu og fagninu má sjá í spilaranum hér að ofan.
Norski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Sjá meira