Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki Valur Páll Eiríksson skrifar 2. ágúst 2026 16:50 Vísir / Anton Brink Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var ánægður með sitt lið eftir 2-2 jafntefli við Íslandsmeistara Víkings á Akranesi í Bestu deild karla í dag. Hann er svekktur að hafa ekki unnið leikinn og segir það alfarið skrifast á dómara leiksins.
Aðspurður um hvort ÍA hafi ekki átt að vinna leikinn segir Lárus: „Jú, alveg 100 prósent. Ástæðan fyrir því að við unnum ekki þennan leik liggur hvorki hjá Víkingum né okkur,“ segir Lárus og er þá spurður hvað hann eigi við. „Það var alveg augljóst að við áttum að fá víti. Böddi snerti boltann fyrst og svo tekur markmaðurinn hann út. Svo er það þannig að leikmenn ganga eins langt og dómarinn leyfir,“ segir Lárus Orri sem beinir sér þá að rauðu spjaldi sem Gísli Eyjólfsson fékk fyrir að reka höfuðið í Davíð Örn Atlason, leikmann Víkings. „Dómararnir verða að fara að verða svolítið klókari. Davíð er klókur og ögrar Gísla og kallar fram viðbrögð frá honum. Það eina sem dómarinn á að gera er að labba að þeim og segja þeim að hætta þessu kjaftæði. Gefa báðum gult og málið dautt,“ „Ef dómarar leyfa leikmönnum að komast upp með þetta, að fiska leikmenn út af þá halda þeir því bara áfram. Ég álása þeim ekki fyrir að spila þennan leik vegna þess að þeir græða á þessu. Við vorum alveg með þá í þessari stöðu en hann nær að fiska leikmann okkar út af vegna þess að dómarinn fellur í gildruna,“ segir Lárus Orri. Gísli verður nú líka að axla ábyrgð á því að hann bjóði hættunni heim með því að gera þetta. Ekki satt? „Gísli gerir það. En Davíð hefði aldrei verið að þessi kjaftæði ef hann vissi að dómarinn myndi ekki falla í þessa gryfju. Gísli stangar hann ekki, þeir koma saman og hann hendur sér niður.“ Lárus Orri segist þá ánægður með sína menn sem hafi átt meira skilið úr leiknum. „Ég var ánægður með mitt lið. Mér fannst þetta vera framhald af leiknum á móti Stjörnunni. Við vorum að mæta hörkugóðu liði sem sýndu okkur þá virðingu að mæta með alla sína helstu menn þó þeir séu í þessari miklu traffík. Þetta var hörkuleikur og ég er mjög ánægður með leikinn,“ Það er allt á uppleið eftir þessa fimm leikja taphrinu fyrir Stjörnuleikinn? „Af hverju ert þú alltaf að tala um þessa fimm leikja taphrinu?“ spyr Lárus Orri á móti og hlær. En jánkar því svo að allt sé á uppleið hjá Skagamönnum.
ÍA Besta deild karla Víkingur Reykjavík Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira