Franco Baresi er látinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. júlí 2026 07:48 Baresi í kveðjuleiknum fyrir AC Milan árið 1997. Hann hefur nú kvatt í hinsta sinn. ap Franco Baresi, fyrrum fyrirliði AC Milan og ítalska landsliðsins, er látinn 66 ára að aldri.
Fyrr í vikunni bárust ótímabærar fregnir af andláti hans, sem AC Milan neitaði fyrir en félagið hefur nú staðfest fráfall Baresi. Baresi er af mörgum talinn einn besti varnarmaður sögunnar og var „maður aldarinnar“ hjá AC Milan á síðustu öld. Hann ólst upp og spilaði allan tuttugu ára ferilinn, frá 1977 til 1997, hjá AC Milan. Þar varð hann Ítalíumeistari sex sinnum og Evrópumeistari þrisvar. Baresi var fyrirliði AC Milan í fimmtán ár. Hann spilaði alls 719 leiki fyrir félagið og átti síðar eftir að sitja sem heiðursforseti AC Milan frá 2020. Baresi með Meistaradeildarbikarinn árið 1989 eftir sigur í úrslitaleik gegn Steaua Bucharest. Alessandro Sabattini/Getty Images Á landsliðsferlinum lék hann 81 leik fyrir Ítalíu og tók þátt í fjórum heimsmeistarakeppnum, síðast árið 1994 þegar Baresi sneri aftur eftir erfið hnémeiðsli. Ítalía tapaði í úrslitaleik gegn Brasilíu, í fyrsta úrslitaleik HM sem réðst á vítaspyrnukeppni. Baresi gekkst undir aðgerð í ágúst 2025 þar sem hnúður var fjarlægður úr lunga hans. Hann kom síðast opinberlega fram á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina í febrúar þegar hann bar Ólympíukyndilinn inn á San Siro leikvanginn ásamt vini sínum og keppinaut úr fjölmörgum Mílanó-nágrannaslögum, Giuseppe Bergomi. Baresi hafði barist við slæma heilsu síðustu mánuði. AP Photo/Luca Bruno, File „Mílanó grætur fráfall Franco Baresi. Fordæmið sem hann setti og heilindi hans í þágu félagsins verða að eilífu greypt í DNA félagsins, rétt eins og hin goðsagnakennda treyja númer 6 sem hann spilaði í. Baresi var holdgervingur hjarta og sálar AC Milan. Allir hjá félaginu og allir stuðningsmenn heiðra minningu Franco Baresi. Til minningar um Franco stöndum við saman, vitandi að hann mun leiða okkur og hvetja áfram á Rossoneri-ferðalagi okkar. Að eilífu. Því Baresi er eilífur.“ La Storia del Milan è in lacrime per la scomparsa di Franco Baresi. Il suo esempio e la sua profondità saranno, per sempre come la sua maglia numero 6, parte integrante e fondamentale del DNA e del cammino di tutto il Club. Le condoglianze che AC Milan porge alla famiglia tutta… pic.twitter.com/a8wNOCUc2o— AC Milan (@acmilan) July 31, 2026
Ítalski boltinn Fótbolti Andlát Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira