Barnabarn Idi Amin dæmt úr leik fyrir að skalla andstæðing Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júlí 2026 13:02 Aziz Abdul tókst ekki að sigra Skotland, þar sem Samveldisleikarnir fara fram, eins og hann hafði lofað. Úgandski boxarinn Aziz Abdul var dæmdur úr leik á Samveldisleikunum eftir að hann virtist skalla mótherja sinn. Abdul er barnabarn einræðisherrans alræmda, Idis Amin.
Abdul mætti Englendingnum Damar Thomas í átta manna úrslitum í ofurþungavigt á Samveldisleikunum. Í 3. lotu virtist Adbul skalla Thomas þegar þeir glímdu í hringnum. Hann var í kjölfarið dæmdur úr leik og Thomas komst því áfram í undanúrslit. Abdul fannst illa að sér vegið og taldi fordóma liggja að baki ákvörðuninni að dæma hann úr leik. „Þegar þú horfir á fyrri bardaga enskra boxara búa þeir til mikla snertingu. Ég náði góðu höggi á hann en það taldi ekki. Í staðinn drógu þeir stig af mér. Ég er svartur Afríkumaður en hann er heimamaður,“ sagði hinn 25 ára Abdul. Áður en hann var dæmdur úr leik hafði hann fengið viðvaranir og var undir á stigum hjá dómurum bardagans. „Það eina sem ég get sagt er að ákvörðunin er ekki rétt. Ég er ekki sáttur. Hann gaf mér olnbogaskot. Þetta var óvart hjá mér. Hvernig gat ég skallað einhvern? Ég myndi ekki gera það. Hann var sá sem vildi vinna. Hann var sigurvegari fyrir. Ég vissi að ef ég næði ekki að rota hann myndi ég ekki vinna bardagann,“ sagði Abdul. Fyrir bardagann sagðist Abdul ætla að verða nýr Skotakonungur og vísaði þar í orð afa síns sem var hugfanginn af Skotlandi. The Last King of Scotland er svo nafn á kvikmynd um Amin frá 2006. Þar fór Forest Whitaker með hlutverk Amins og fékk Óskarsverðlaun fyrir frammistöðu sína. Abdul hitti Amin reyndar aldrei en hann dó örfáum árum eftir að Abdul fæddist. Amin réði ríkjum í Úganda á árunum 1971-79 en talið er að í stjórnartíð hans hafi allt að hálf milljón manns verið myrt. Líkt og Abdul var Amin boxari. Hann var úgandskur meistari í léttþungavigt á árunum 1951-60.
Box Úganda Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Verstappen skrifaði undir nýjan samning Áfram ofsótt og eltihrellirinn ákærður að nýju Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Sjá meira