Golf

Danir og Norð­menn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktor Hovland verður annar fyrirliða norska liðsins en hann er í þrettánda sæti á heimslista karlagolfsins.
Viktor Hovland verður annar fyrirliða norska liðsins en hann er í þrettánda sæti á heimslista karlagolfsins. EPA/STEVEN M. FALK

Norskir og danskir kylfingar munu keppa sín á milli árlega frá og með árinu 2027 en keppnin hefur fengið nafnið „Battle of the Vikings“ og fyrsta mótið fer fram á næsta ári. Leikinn verður einn dagur í Noregi og einn dagur í Danmörku.

Viktor Hovland og Kristoffer Reitan verða fyrirliðar norska liðsins en danska liðinu verður stýrt af bræðrunum Nicolai og Rasmus Höjgaard.

„Nú er ýmislegt að gerast, við erum í samstarfi við Dani og spilum svolítið upp á þennan ríg, við ýtum hvort öðru áfram til að gera hvort annað betra,“ sagði Viktor Hovland á blaðamannafundi í Ósló en bæði karlar og konur taka þátt.

„Þetta er spennandi verkefni sem við höfum rætt um í nokkurn tíma. Við þurftum að hugsa út fyrir kassann og finna upp á einhverju nýju þar sem engin Evrópumótaröð verður í Danmörku á næsta ári,“ sagði Nicolai Höjgaard í samtali við TV 2 Sport.

Liðin í mótinu samanstanda af tólf kylfingum sem eru valdir af liðsstjórunum, sem einnig taka sjálfir þátt í mótinu. Liðin verða samsett úr unglingum, kvenkylfingum, ungum leikmönnum og leikmönnum frá ECCO Tour, HotelPlanner Tour, DP World Tour og PGA Tour.

Nicolai Höjgaard vonast einnig til þess að mótið geti gefið ungu leikmönnunum smjörþefinn af því að vera hluti af mótaröð.

„Við viljum gefa þeim upplifunina af því að komast út og spila hver gegn öðrum, að ferðast sem atvinnumaður og keppa sín á milli. Svo er fjárhagslegur ávinningur í þessu sem hjálpar þeim á ferlinum. Þannig að okkur fannst þetta ganga mjög vel upp og vera spennandi,“ sagði Höjgaard.

„Tilfinningin að gefa eitthvað til baka er næstum betri tilfinning en að fara út og spila góðan golfhring. Ef við getum verið með í að móta danskt golf og golf á Norðurlöndunum, þá yljar það um hjartarætur og það er líka eitt af markmiðunum með þessu,“ sagði Höjgaard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×