Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Jón Þór Stefánsson skrifar 29. júlí 2026 13:38 Hér er mynd af hænunni sem um ræðir. Vallarbraut ehf Fyrirtækið Vallarbraut ehf., sem er til húsa í Trönuhrauni í Hafnarfirði, lýsir eftir svartri íslenskri landnámshænu sem slapp úr búri sínu. „
Óvenjulegur flótti átti sér stað við Vallarbraut í Trönuhrauni í Hafnarfirði nú rétt í þessu. Ein af hænunum okkar sá sér leik á borði, slapp úr búrinu og hélt út í hinn stóra heim. Um er að ræða íslenska landnámshænu, svarta að lit. Vallarbraut er rétt hjá KFC og því er skiljanlegt að við höfum töluverðar áhyggjur af leiðarvali hennar!“ segir í tilkynningu frá Vallarbraut. Þar eru akandi og gangandi vegfarendur á svæðinu beðnir um að sýna aðgát og hafa augun opin. „Hænunnar er sárt saknað. Þótt landnámsblóðið kalli greinilega á frelsi og ævintýri viljum við fá hana heila heim aftur áður en hún nemur sér eigið land – eða ratar inn á kolrangan veitingastað. Þeir sem verða varir við svarta hænu í nágrenni Vallarbrautar, Trönuhrauns eða KFC eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Vallarbraut í síma 454-0050. Við lofum góðum móttökum, fullu sakaruppgjöri – og engri yfirheyrslu um ferðir hennar!“ Uppfært klukkan 22:39.Hænan er fundin, samkvæmt tilkynningu frá Óskari Jónssyni.
Dýr Hafnarfjörður Fuglar Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Sjá meira