Zidane nýr landsliðsþjálfari Frakklands Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. júlí 2026 09:28 Frakkland varð heimsmeistari árið 2018, vann silfur 2022 en hafnaði í fjórða sæti í sumar. Denis Thaust/SOPA Images/LightRocket via Getty Images Zinédine Zidane var kynntur sem landsliðsþjálfari Frakklands í fótbolta á blaðamannafundi í morgun. Hann tekur við af Didier Deschamps sem hætti að loknu HM eftir fjórtán ár við stjórnvölinn.
Zidane, fyrrum landsliðsmaður Frakklands sem varð heimsmeistari árið 1998 og endaði landsliðsferilinn með frægum skalla í úrslitaleik HM 2006, stýrði síðast Real Madrid, í annað sinn, árið 2021 en hefur ekki þjálfað undanfarin fimm ár. Hann er að margra mati talinn einn besti fótboltamaður í sögu Frakklands og sem þjálfari stýrði hann ofurliði Real Madrid til sigurs í Meistaradeildinni þrjú ár í röð frá 2016-18. Zidane skrifar undir samning sem tekur gildi þann 1. ágúst og gildir fram yfir heimsmeistaramótið árið 2030. Hann mun kynna starfsteymi sitt í byrjun september, á svipuðum tíma og landsliðshópurinn verður kynntur fyrir fyrstu leiki hans við stjórnvölinn gegn Tyrklandi, Belgíu og Ítalíu í lok september og byrjun október. Á blaðamannafundi í morgun sagði Philippe Diallo, forseti franska knattspyrnusambandsins, að viðræður við Zidane hefðu staðið yfir síðan í febrúar 2025. „Strax í febrúar 2025 hitti ég Zinédine Zidane og hafði samband við hann til að bjóða honum stöðu þjálfara franska landsliðsins okkar. Síðan þá höfum við hist nokkrum sinnum til að skipuleggja komu hans. Þetta var löngun okkur beggja. Annars vegar löngun Zinédine, sem er ein af goðsögnum franskrar knattspyrnu og hafði látið í ljós að einn af draumum hans væri að þjálfa franska landsliðið. Hins vegar löngun sambandsins til að fá einhvern með áru og hæfni, og hjarta stuðningsmanna okkar, til að leiða eitt besta lið heims,“ sagði forsetinn samkvæmt Le‘quipe. La présentation du nouveau sélectionneur de l'Equipe de France en direct. https://t.co/sB88zHliKt— Equipe de France ⭐⭐ (@equipedefrance) July 28, 2026 „Ég hef oft sagt það: það er ekkert stærra en franska landsliðið. Það er því mikil gleði og augljóslega mikið stolt að verða þjálfari þessa landsliðs,“ sagði Zidane. „Þetta er líka ábyrgð. Ég vil þakka Philippe Diallo, forseta, framkvæmdastjórninni og franska knattspyrnusambandinu fyrir traustið og votta virðingu mína við fjórtán ára þjónustu Didiers [Deschamps] og starfsfólks hans. Ég hugsa líka sérstaklega til allra þjálfara minna í dag. Það þarf varla að taka það fram að ég hef mikinn metnað fyrir hönd franska landsliðsins.“
Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira