Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. júlí 2026 18:53 Hildur Björnsdóttir á kosninganótt í maí. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir fyrirhugaðan niðurskurð Reykjavíkurborgar ekki fara eftir starfsmannafjölda ákveðinna sviða heldur verði miðað við upphæð. Uppfylling hundrað daga markmiða meirihluta borgarstjórnarinnar gangi vel. „
Það var hluti af hundrað daga listanum að byrja á þessari tiltekt og við erum byrjuð á henni. Það er auðvitað alltaf sárt og erfitt því að það felur í almennt í sér að við þurfum að kveðja fólk,“ segir Hildur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Ráðist var í uppsagnir hjá borginni í lok júní þar sem átján störf voru lögð niður og níu störf færð milli sviða eða skrifstofa innan borgarinnar. Á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar, sem samanstendur af Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og Framsókn, segir að þegar sé vinna hafin að því að fækka millistjórnendum og draga úr yfirbyggingu í borginni. Líkt og áður hefur Hildur lítið viljað tjá sig um hvað felst nákvæmlega í því að draga úr yfirbyggingunni. „Við munum kynna næsta fasa fljótlega eftir verslunarmannahelgi eða í ágúst og ég hef nú varist frétta nákvæmlega af því hvað það er með þessa virðingu fyrir hagsmununum sem eru undir. Við ætlum bara að kynna það vel í góðri samvinnu við sviðsstjórana sem halda á þeim málum þegar að kemur,“ segir hún. „Við þurfum að fara í töluverðan niðurskurð í borgarkerfinu í heild og auðvitað er það sem helst hreyfir nálina, það er launakostnaður. Það er bara veruleikinn þannig að þegar við biðjum sviðsstjóra að skera niður þá þarf auðvitað að rýna í starfsmannatölur og það getur verið mismunandi eftir sviðum. Það getur verið misjafn launakostnaður eftir því hvaða starfsfólk þú ert að horfa á, þannig að nei, það er ekki komin ákveðin starfsmannatala en það eru meira upphæðir og ákveðin markmið í niðurskurði sem við erum að horfa á.“ Bílastæðamálin áberandi á verkefnalistanum „Við vorum með þrjá verkefnalista sem við kynntum við upphaf kjörtímabilsins. Það var hundrað daga listi, tólf mánaða listi og fjögurra ára listi. Við erum með nokkur verkefni sem við ætlum að klára á fyrstu hundrað dögunum og svona 10. september þá eru hundrað dagar liðnir af þessu kjörtímabili okkar,“ segir Hildur sem formlega tók við embætti borgarstjóra þann 2. júní. Verkefnalistann má sjá hér. Búið er að strika út þó nokkra hluti af listanum, þar á meðal að flagga íslenska fánanum við Ráðhúsið á hverjum degi og samþykkja símafrí í grunnskólum borgarinnar. Einnig hefur verið ákveðið að samræmt námsmat verði lagt fyrir öll börn í öllum árgöngum og fyrirhugað deiliskipulag Suðurlandsbrautar fellt úr gildi. „Þetta er sumarleyfismánuður okkar Íslendinga og mál hreyfast kannski ekkert rosalega hratt þótt ég sé að reyna að hamast hérna. Þannig að það er mjög margt sem mun klárast strax í ágúst, til að mynda margar tillögur sem snúa að bílastæðamálum. Við erum með mjög margar bílastæðatillögur á þessum hundrað daga lista,“ segir hún. Til að mynda vill borgin fjarlægja aðskotahluti í bílastæðum í miðborg Reykjavíkur til þess að hægt sé að nota plássið sem bílastæði á ný. „Ég átti fund í síðustu viku af því ég hafði kallað eftir kortlagningu á því nákvæmlega hvar þessir hlutir eru og hvaða stæði þetta eru sem við getum komið aftur í gagnið,“ segir Hildur. „Svo auðvitað í einhverjum tilfellum hafa veitingamenn fengið heimildir til þess að vera með borð og stóla úti á götu á sumrin á góðviðrisdögum til þess að bjóða veitingaþjónustu og við höfum alltaf verið jákvæð fyrir því.“ Þá er einnig til skoðunar að stytta gjaldskyldutímann sem var lengdur í tíð síðasta meirihluta borgarstjórnar. Ekki hægt að forgangsraða stúkunni framar en skólunum „Ég er nú ein af þeim sem finnst þessi stúka ofsalega falleg og það er alveg ótrúlega þyngra en tárum taki að þurfa að vera einhvern veginn í þeim sporum eftir áratuga viðhaldsleysi á þessari stúku að við stöndum frammi fyrir þeirri ákvörðun að hana þurfi að rífa. Það er auðvitað ofsalega erfitt,“ segir Hildur þegar umræðan snerist að stúku Laugardalslaugar. Nauðsynlegt er að rífa stúkuna og hefur heitum pottum við hana verið lokað vegna hættunnar. Nýtt ástandsmat leiðir í ljós töluverðar alkalí- og tæringarskemmdir. Hildur segir að þrátt fyrir að þykja vænt um stúkuna sé ekki hægt að forgangsraða fjármagni til að ráðast í framkvæmdir. Mikil innviðaskuld sé í Laugardalnum, til að mynda þegar litið sé til skólanna. „Niðurstaða þessarar verkfræðiskýrslu sem við höfum í höndunum gerir ráð fyrir að hana þurfi að rífa og af henni stafi hreinlega hætta, vegna þess að hún er svo illa farin núna. Minn persónulegi vilji væri að þarna gæti risið eitthvað húsnæði sem gagn væri af fyrir hverfið og sem væri jafnvel með einhverja skírskotun í arkitektúr stúkunnar.“
Reykjavík Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Rekstur hins opinbera Bílastæði Sundlaugar og baðlón Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Sjá meira