Erlent

Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki

Jón Þór Stefánsson skrifar
Mynd frá vettvangi.
Mynd frá vettvangi. Getty

Minnst einn lést þegar lítil flugvél hafnaði á húsþaki heimilis í Ganderkesee í norðurhluta Þýskalands í dag.

Talið er að tveir hafi verið í flugvélinni. Fyrir utan hinn látna er hinn einstaklingurinn enn ófundinn. Fjölskyldan sem býr í húsinu var ekki heima þegar slysið átti sér stað.

Tildörg slyssins, hvers vegna vélin hafnaði á húsinu, eru enn óljós og til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×