Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. júlí 2026 18:53 Hildur biðlar til borgarbúa um að sýna biðlund, gatnamótin verði komin að fullu í gagnið í haust en þó verði að draga lærdóm af gerð þeirra. Borgarstjóri segir að draga megi lærdóm af gerð gatnamóta Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar en miklar umferðartafir hafa sett svip sinn á gatnamótin frá því þau voru opnuð fyrr í mánuðinum.
Gatnamótin voru opnuð fyrir umferð þann 10. júlí síðastliðinn og fljótt fór að bera á miklum umferðartöfum við umferðarljósin að brúnni en fram hefur komið að Reykjavíkurborg hafi farið fram á núverandi skipulag við gatnamótin í stað þess að þau yrðu að fullu mislæg. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir gatnamótin ekki á fullri afkastagetu enn og verði ekki fyrr en framkvæmdum lýkur í nóvember. „Þannig við þurfum auðvitað að bíða eftir því, bæði að allar þessar leiðir til austurs opni sem nú eru lokaðar og líka að ljósastýringin sé komin að fullu í gagnið á þessum gatnamótum og þá getum við metið áhrifin. Þannig það tekur einhvern tíma en umferðin þyngist auðvitað á haustin og það er þá sem við finnum fyrir umferðarþunganum þannig ég vona auðvitað að það taki ekki langan tíma að klára þessa framkvæmd.“ Áður hefur komið fram að enn sé hægt að gera gatnamótin að fullu mislæg og tekur Hildur undir með Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs sem sagði í kvöldfréttum að næstu skref ráðist af því hvernig fullbúin gatnamót reynast. Hildur segir mikilvægt að lærdómur sé dreginn af málinu en breytingar á fleiri gatnamótum í borginni, líkt og á Bústaðarvegi og Miklubraut eru nú í bígerð. „Okkur finnst auðvitað illa hafa verið hugað að samgöngumálum í langan tíma í Reykjavík sérstaklega og það hefur lítið verið gert til þess að greiða úr umferð, við ætlum að breyta þeirri stefnu þannig við þurfum auðvitað að taka ákvarðanir sem miða að því að greiða úr daglegri umferð og fólk og íbúar komist hreinlega hraðar á milli staða.“ Þannig að þá verði kannski horft til þess að gatnamót verði að fullu mislæg frekar en það sem er í gangi núna á þessum gatnamótum? „Það þarf aðvitað að meta svolítið í hverju tilfelli fyrir sig. Við erum líka spennt fyrir gangalausnum og til að mynda lausn eins og Miklubrautargöng, það er auðvitað mislæg lausn nema þar fer umferðin niður og veldur minna raski ofanjarðar, þannig við erum líka spennt fyrir slíkum lausnum og viljum auðvitað flýta Miklubrautargöngum eins og kostur er.“ Framkvæmdasvæði nýja vegsins
Reykjavík Borgarstjórn Vegagerð Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Skilorð fyrir að tvíkjálkabrjóta sambýliskonu sína Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Sjá meira