„Klappað fyrir manni þegar maður mætti“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. júlí 2026 19:46 Arnar Daði var öryggið uppmálað milli stanganna í gær og var mættur í bæjarvinnu Mosfellsbæjar klukkan átta í morgun. vísir / guðmundur Markmaðurinn Arnar Daði Jóhannesson var hetja Aftureldingar gegn Fylki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í gærkvöld, þegar hann varði fleiri vítaspyrnur í einni vítakeppni en hann hafði gert á öllum ferlinum fram að þessu. Hetjan tók sér samt ekkert frí frá vinnu í morgun.
Æsispennandi undanúrslitaleikur Fylkis og Afturelding fór fram í Árbænum í gær og sveiflaðist í báðar áttir en endaði með 1-1 jafntefli. Eftir framlengingu var haldið í vítaspyrnukeppni og þar tryggði Arnar Daði sigur Aftureldingar með því að verja þrjú víti frá Fylkismönnum. „Ég held að ég hafi varið tvö víti fyrir þessa keppni, þannig að ég var ekki að búast við þessu. En að taka þrjú víti af sex, mér finnst það bara drullu vel gert. Þetta var ein besta tilfinning sem ég hef upplifað. Það var allt á milljón, ég vissi ekki alveg hvað ég ætti að gera við mig, þannig að ég hljóp bara upp í stúku og faðmaði fyrsta mann sem ég sá,“ sagði Arnar. Fyrsti maðurinn sem hann sá í stúkunni var einmitt Jökull Andrésson, markmaður Aftureldingar á síðasta tímabili og núverandi markmaður FH í Bestu deildinni. „Við erum mjög góðir vinir, spjöllum mikið og golfum mikið saman. Það var geggjað að fara til hans í stúkunni,“ sagði Arnar. Arnar og Jökull faðmast eftir leik. vísir / GUÐMUNDUR Eins og sannri bæjarhetju sæmir var Arnari boðið að taka sér frí frá bæjarvinnu Mosfellsbæjar í morgun en hann ákvað samt að mæta á slaginu átta. „Maður verður nú að sinna vinnunni líka, það er mikilvægt. Þetta er líka geggjaður hópur að vinna hérna, skemmtilegt fólk og geggjaðir krakkar. Það var klappað fyrir manni þegar maður mætti, smá fögnuður,“ sagði Arnar. Arnar á öxlum fyrirliðans Axels Óskars eftir leik.vísir / guðmundur Þó Afturelding sé á leið á Laugardalsvöll í þriðja sinn á fjórum árum hefur Arnar ekki enn spilað þar. Hann sat á bekknum í umspilsleikjum liðsins í Lengjudeildinni 2023 og 2024 en hlakkar til að standa á milli stanganna í bikarúrslitunum. „Þetta verður geggjað, að spila á svona stóru sviði fyrir framan allt fólkið úr Mosó. Þetta verður óraunverulegt… Ætli ég taki ekki þrjú aftur,“ sagði Arnar léttur að lokum. Viðtal við Arnar Daða má sjá í spilaranum efst í fréttinni.
Tengdar fréttir Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Arnar Daði Jóhannesson var maður kvöldsins í íslenska fótboltanum eftir hetjulega frammistöðu sína þegar Afturelding tryggði sér sæti í sínum fyrsta bikarúrslitaleik karla í sögunni. 22. júlí 2026 08:17 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira
Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Arnar Daði Jóhannesson var maður kvöldsins í íslenska fótboltanum eftir hetjulega frammistöðu sína þegar Afturelding tryggði sér sæti í sínum fyrsta bikarúrslitaleik karla í sögunni. 22. júlí 2026 08:17