Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. júlí 2026 12:11 Rósir prýða minnisvarðann um fórnarlömb hryðjuverkanna í Ósló. EPA Fimmtán ár eru í dag liðin frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló þar sem 77 manns týndu lífi. Formaður Ungs jafnaðarfólks segir það skipta öllu máli að minnast fórnarlambanna og standa gegn hatri og ofbeldi.
Þegar klukkan var tuttugu og fimm mínútur gengin í fjögur, föstudaginn tuttugasta og annan júlí árið tvö þúsund og ellefu, sprakk bílasprengja í miðborg Óslóar. Allt tiltækt lið var kallað á staðinn en þar létu átta lífið og hundruð særðust. Mitt í ringulreiðinni ók árásarmaðurinn úr borginni og til Úteyjar, þar sem ungliðahreyfing norska Verkamannaflokksins er með sumarbúðir. Hann skaut þar sextíu og níu ungmenni til bana og særði fleiri. Ekki sjálfsagt Atburðanna er minnst um allan heim. Fórnarlömb, aðstandendur, stjórnmálamenn og fleiri sóttu sérstaka minningarstund í Óslóardómkirkju í dag og Ungt jafnaðarfólk stendur fyrir minningarathöfn í minningarlundinum í Vatnsmýri klukkan hálf sex í kvöld. Jóhannes Óli Sveinsson formaður Ungs jafnaðarfólks segir minning fórnarlambanna skipta öllu máli. „Ég held að þetta sé alltaf áminning um hvað getur gerst ef að maður leyfir hatrinu að grassera. Við þurfum að muna að samfélagið sem við búum í og gildin sem við höfum hérna á Íslandi og Norðurlöndunum er ekki sjálfsagt. Við búum í frjálsu lýðræðislegu samfélagi þar sem fólk getur haft sínar skoðanir og barist fyrir því sem að þau trúa á. Það er eitthvað sem við þurfum að standa vörð um,“ segir hann. Myrt fyrir gildin sín Ungt jafnaðarfólk sendir fulltrúa í sumarbúðir ungliðahreyfingar Verkamannaflokksins í Útey á hverju ári. „Þetta eru 77 manns sem eru drepin og þar af eru 69 ungmenni sem að voru stödd í þessum sumarbúðum. Þau voru drepin fyrir gildin sín, fyrir að vera jafnaðarfólk og tilheyra Verkamannaflokknum,“ segir Jóhannes Óli. Ungt jafnaðarfólk hefur haldið minningarathöfn árlega frá árinu 2012 til að minnast fórnarlambanna og standa gegn hatri og pólitísku ofbeldi.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira