Innlent

Leifturhröð við­brögð björgunar­sveitar dugðu ekki til

Freyja Þórisdóttir skrifar
Myndin er úr myndasafni Björgunarfélagsins og tengist útkallinu ekki beint.
Myndin er úr myndasafni Björgunarfélagsins og tengist útkallinu ekki beint. Facebook/Björgunarfélag Árborgar

Fimmtán mínútur liðu frá því að útkall barst um að maður hefði fallið í Ölfusá í gær þar til liðsmenn Björgunarfélags Árborgar höfðu náð honum upp í bát sinn. Tilkynnt var í morgun að maðurinn hefði látist. 

Björgunarfélagið greinir frá því í færslu á Facebook-síðu sinni að sveitin hafi verið kölluð út á hæsta forgangi í gærkvöldi.

„Fyrstu bátar fóru á flot 7 mínútum seinna og fannst viðkomandi tæpum 15 mínútum eftir að útkall barst. Björgunarmenn hófu endurlífgun í bátnum og var sjúklingurinn svo færður á land og yfir í þyrlu Landhelgisgæslunnar í samstarfi við sjúkraflutninga og lögreglu,“ segir í færslunni.

„Nú í morgun tilkynnti lögreglan að sjúklingurinn hefði látist. Við í Björgunarfélagi Árborgar vottum aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×